07/09/2026

Úrslit úr Fyrirtækjakeppni Keilis 2026

Úrslit úr Fyrirtækjakeppni Keilis 2026

Fyrirtækjakeppni Keilis fór fram síðastliðinn laugardag.

Veðrið var með besta móti á meðan kylfingar léku frábæran Hvaleyrarvöll. Mótið er árlega ein af helstu fjáröflunum klúbbsins og viljum við þakka öllum þeim fyrirtækjum sem tóku þátt.

Leikinn var betri bolti og voru veitt glæsileg verðlaun fyrir fyrstu 5 sætin og þar að auki fyrir næstur holu á öllum par 3 holum vallarins. Hrefna í veitingasölunni sá svo um að enginn fór svangur né þyrstur heim.

Úrslit urðu eftirfarandi:

1.Sæti: Stjörnugrís 1
2.Sæti: B&L 3
3.Sæti: Hópbílar
4.Sæti: COWI 1
5.Sæti: HÁ Verslun

Nándarverðlaun:

4.Hola: Kristján Bergmann – 1,97m
6.Hola:
Magnús Björn Bragason – 5,51m
12.Hola: 
Húbert Ágústsson – 1,03m
17.Hola: 
Gísli Sigurbergsson 4,09m

Takk allir sem tóku þátt fyrir frábæran dag!

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 07/10/2026
    Uppgjör keppnistímabilsins
  • 07/10/2026
    Framkvæmdir hafnar við stækkun golfskála Keilis
  • 02/10/2026
    Skert þjónusta í golfskálanum
  • 02/10/2026
    Mótaröð Keiliskylfinga 65+ lauk með lokahófi og verðlaunaafhendingu
  • 01/10/2026
    Stuð á uppskeruhófi Kvennamótaraðarinnar
  • 11/09/2026
    Umfangsmiklar haustframkvæmdir framundan hjá Keili