02/02/2026

Viltu gerast golfdómari?

Viltu gerast golfdómari?

Dómaranefnd GSÍ stendur fyrir héraðsdómaranámskeiði í febrúar mánuði eins og hefur verið gert síðustu ár. Fyrirlestrar verða 17., 19., 23. og 25. febrúar 2026, kl. 19:30 – 22:00. Fyrirlestrar eru sendir út á netinu og einnig teknir upp þannig að það er hægt að horfa þá aftur eða eftir hentugleika.

Námskeiðið er frítt fyrir meðlimi í golfklúbbum innan GSÍ.

Ekki er skilyrði að fara í prófið þó að fólk sæki námskeiðið. Prófið er rafrænt próf tekið á netinu þannig að það er engin fyrirstaða fyrir aðila á landsbyggðinni að sitja námskeiðið og taka prófið.

Það er ekki skilyrði að hafa setið námskeiðið til að geta tekið prófið. Þó er krafa að skrá sig á námskeiðið svo hægt sé að senda viðkomandi upplýsingar um námskeiðsefni og tengla á prófið. Ætlast er til þess að þeir sem sitja héraðsdómaranámskeiðið byrji á því að undirbúa sig með því að fara í gegnum 1.stigs golfregluskóla R&A.

Þátttöku í héraðsdómaranámskeiði er hægt að tilkynna með því að skrá sig hér Skráning á námskeið eða senda tölvupóst á domaranefnd@golf.is með (kennitölu, nafni og heiti golfklúbbs).

Við skorum á alla sem hafa áhuga á að dýpka sinn skilning á golfreglunum að skrá sig.

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 07/10/2026
    Uppgjör keppnistímabilsins
  • 07/10/2026
    Framkvæmdir hafnar við stækkun golfskála Keilis
  • 02/10/2026
    Skert þjónusta í golfskálanum
  • 02/10/2026
    Mótaröð Keiliskylfinga 65+ lauk með lokahófi og verðlaunaafhendingu
  • 01/10/2026
    Stuð á uppskeruhófi Kvennamótaraðarinnar
  • 11/09/2026
    Umfangsmiklar haustframkvæmdir framundan hjá Keili