04/05/2015

Vortilboð á Sveinskotsvöll

Vortilboð á Sveinskotsvöll

Fram til 15. maí verður frábært tilboð að gerast nýr félagi á Sveinskotsvelli, Sveinskotsvöllur er glæsilegur níu holu völlur sem hentar byrjendum sem lengra komnum, til að gerast aðili að Hvaleyrarvelli sem er aðalklúbbsaðild að Keilir þurfa kylfingar að vera komnir með 34 í forgjöf og er því sérstaklega tilvalið fyrir byrjendur að byrja golfið á Sveinskotsvelli. Til 15. maí er ekkert inntökugjald á Sveinskotsvöll og með öllum nýjum aðildum er innifalið Platínuboltakort í Hraunkoti sem er glæsilegt golfæfingasvæði á Hvaleyrarvelli. Tilboðið kostar einungis 50,000 krónur

Eftirfarandi er innifalið í aðild að Sveinskotsvelli:

Platínuboltakort
Ekkert inntökugjald
9 vinavellir
2 hringir á Hvaleyrarvöll (hámarksforgjöf 34)
Aðild að golf.is og gild forgjöf
Nýliðanámskeið (auglýst síðar)

Þegar forgjöf 34 er náð geta kylfingar uppfært aðild sína í Hvaleyrarvöll og er þá greiddur mismunur á 50,000 krónum og 88,500 krónum.

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 26/06/2025
    Minningarmót Guðmundar Friðriks og Kristínar Páls
  • 24/06/2025
    Meistaramót Keilis 2025 – skráning hefst 25. júní
  • 24/06/2025
    Nýjar staðarreglur taka í gildi
  • 12/06/2025
    Jónsmessan 2025
  • 04/06/2025
    Bikarkeppni Keilis í samstarfi við Hjarta Hafnarfjarðar
  • 02/06/2025
    Hvaleyrarbikarinn 2025: Úrslit