Keppnissumarið fer vel af stað
Keppnissumarið fer vel af stað
Um helgina voru 132 keppendur skráðir til leiks á fyrsta móti Eimskipsmótaraðar GSÍ. Þar af 24 frá Keili. Aflýsa þurfti fyrsta hring á föstudegi vegna veðurs. Óhætt er að segja að árangur helgarinnar hafi verið góður, sérstaklega hjá unga fólkinu en hjá körlunum urðu jafnir í 4 sæti Ísak Jasonarson og Einar Haukur Óskarsson. Hjá konununum varð Guðrún Brá Björgvinsdóttir í 2. sæti og jafnar í 3. til 4. sæti urðu þær Anna Sólveig Snorradóttir og Þórdís Geirsdóttir. Anna, Guðrún og Ísak eru á 17. og 18. ári, þau eru búin að æfa undanfarin ár undir handleiðslu golfkennara Keilis og er sérlega ánægjulegt að sjá hversu vel þau spjara sig meðal eldri og reyndari kylfinga. Annar árangur var jafnframt mjög góður en bæði hjá körlunum og konunum átti Keilir 5 kylfinga í efsstu 10 sætunum.
Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!
Aðrar fréttir
Nýr búnaður og lægri verð í hermunum í Hraunkoti
Framlengdur skráningarfrestur í Keilisferðina til Fairplay
Breyttar áherslur í mótahaldi hjá Golfklúbbnum Keili
Happdrætti barna- og ungmennastarfs Keilis
Framkvæmdum lokið á nýrri starfsmannaaðstöðu og verkstæði
Happdrætti til styrktar æfingaferðar barna- og unglingastarfs Keilis

