02/01/2015

2014 Klárað með stæl

2014 Klárað með stæl

Á gamlársdag var haldið hið árlega Áramótapúttmót Hraunkots. 120 púttarar mættu til leiks og var veitt verðlaun fyrir efstu 3. sætin ásamt aukaverðlaunum. Byrjað var kl 10 um morguninn og lauk leik kl 15. Hraunkot bauð uppá fullt af snakki allan daginn og virtust gestir Hraunkots taka vel í það og var snakkið sérstaklega vinsælt á yngri kynslóðinni. Einnig voru margir sem kíktu við í golfskála Keilis og ræddu málin. Vertinn okkar hann Balli sá svo um gleðina í skálanum allan daginn. Axel Bóasson fagnaði svo sigri í Áramótapúttmóti Hraunkots 2014 og var hann einnig með flesta ása. Ólöf Baldursdóttir og Levý Jóhannesson fengu einnig aukaverðlaun. Ólöf fyrir flesta tvista og Levý fyrir flest þrípútt. Í öðru sæti var Aron Atli Valtýsson og Ragnar Ágúst Ragnarsson í þriða sæti. Hraunkot þakkar öllum fyrir komuna á gamlársdag og óskar öllum kylfingum farsældar á komandi ári.  Hér eru svo heildarúrslit Áramótapútt 2014-15.

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 20/08/2026
    Fyrsti ráshópur lagði af stað í Íslandsmóti unglinga klukkan sjö í morgun
  • 20/08/2026
    Stækkun golfskála Keilis
  • 18/08/2026
    Keilir heiðraði Óliver Elí eftir glæsilegan sigur
  • 18/08/2026
    Saga Golfklúbbsins Keilis fest á bók
  • 17/08/2026
    Íslandsmót unglinga í höggleik – Okkur vantar ykkar hjálp
  • 06/08/2026
    Opna Kvennamót Keilis 2026 – Skráning hefst 7. ágúst klukkan 14:00