28/07/2017

Keppt um Hvaleyrarbikarinn á Borgunarmótinu

Keppt um Hvaleyrarbikarinn á Borgunarmótinu

Það er skammt stórra högga á milli á Hvaleyrinni þessa dagana. Nú í morgun hófst eitt glæsilegasta golfmót ársins á Eimskipsmótaröðinni, sjálft Borgunarmótið þar sem keppt er um hinn virta Hvaleyrarbikar í annað sinn. Mótið er sjöunda mótið af alls átta á keppnistímabilinu 2016-17.

Íslandsmeistarinn í golfi karla 2017, heimamaðurinn Axel Bóasson, er á meðal keppenda. Hann er einnig stigameistari síðasta tímabils á Eimskipsmótaröðinni. Margir af bestu kylfingum landsins eru á meðal keppenda ásamt eldri og reyndari kylfingum – og margföldum Íslandsmeisturum. Keilismaðurinn Björgvin Sigurbergsson er á meðal keppenda, ásamt mörgum þeirra sem kepptum um sigurinn á Íslandsmótinu í golfi 2017.

Signý Arnórsdóttir úr GK og Axel Bóasson úr GK sigruðu í fyrra þegar mótið fór fram í fyrsta sinn á þeirra heimavelli. Signý er ekki með í titilvörninni.

Aðeins stigahæstu kylfingarnir á Eimskipsmótaröðinni 2016-2017 öðlast keppnisrétt á síðustu mótum ársins en stigalistann má nálgast hér.

Skor keppenda er uppfært hér.

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 20/08/2026
    Fyrsti ráshópur lagði af stað í Íslandsmóti unglinga klukkan sjö í morgun
  • 20/08/2026
    Stækkun golfskála Keilis
  • 18/08/2026
    Keilir heiðraði Óliver Elí eftir glæsilegan sigur
  • 18/08/2026
    Saga Golfklúbbsins Keilis fest á bók
  • 17/08/2026
    Íslandsmót unglinga í höggleik – Okkur vantar ykkar hjálp
  • 06/08/2026
    Opna Kvennamót Keilis 2026 – Skráning hefst 7. ágúst klukkan 14:00