10/07/2013

Feðgar á ferð í morgunsárið

Feðgar á ferð í morgunsárið

Klukkan 6:40 í morgun ræsti sögulegur hópur af stað í meistaraflokki karla. Þar voru á ferðinni þrír feðgar og mætir Keilisfélagar; þeir Benedikt Sveinsson, Sigurbergur Sveinsson og Sveinn Sigurbergsson.

Fréttaritara Keilis á Hvaleyrarholti er ekki kunnugt um að þrír feðgar hafi áður ræst út á sama rástíma í meistaraflokki Meistaramóts klúbbsins og jafnvel þó víðar væri leitað.

Yngsti fjölskyldumeðlimurinn, Benedikt, skaut þeim eldri ref fyrir rass og kom í hús á 75 höggum sem skilar honum í 3. sæti meistaraflokks að loknum fyrsta degi. Sá „gamli“ kom þar næstur á 80 höggum en handboltakappinn Sigurbergur var slakastur þeirra feðga og endaði á 83 höggum. Þess skal þó getið að lognið fór óvenju hratt yfir Hvaleyrarholtið í morgun og lentu margir kylfingar í vandræðum þess vegna.

Á meðfylgjandi mynd má sjá feðgana þrjá að loknum hring, frá hægri: Sigurbergur Sveinsson, Sveinn Sigurbergsson og Benedikt Sveinsson

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 14/05/2025
    Kynning á kvennastarfi Keilis
  • 10/05/2025
    Sumarið er komið
  • 09/05/2025
    Breytingar á vallarmörkum við 1. braut
  • 09/05/2025
    Nú byrjar ballið á Hvaleyrarvelli
  • 02/05/2025
    Keppnistímabilið fer að hefjast
  • 30/04/2025
    Hreinsunardagurinn 2025