25/09/2013

Opið styrktarmót

Opið styrktarmót

 

Opið styrktarmót verður haldið á Hvaleyarvelli laugardaginn 28. september fyrir karlasveit Keilis sem keppir í Evrópukeppni félagsliða 24.-26. október nk. Spilað verður með Texas scramble keppnisfyrirkomulagi, tveir í liði. Veitt verða glæsileg verðlaun fyrir tíu efstu sætin og einnig verða nándarverðlaun á öllum par 3. brautum. Ræst er út frá kl. 08:00 og er skráning í gangi á golf.is eða í síma 565-3360. Þáttökugjald er 3.000 kr. á mann og er þetta tilvalið tækifæri fyrir alla kylfinga að spila Keilisvöllinn í hreint út sagt frábæru ástandi.

 

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 02/11/2026
    Æfingar barna- og unglingastarfsins að hefjast í Hraunkoti
  • 30/10/2026
    Hvaleyrarvöllur opnar aftur fyrir félagsmenn Keilis
  • 07/10/2026
    Uppgjör keppnistímabilsins
  • 07/10/2026
    Framkvæmdir hafnar við stækkun golfskála Keilis
  • 02/10/2026
    Skert þjónusta í golfskálanum
  • 02/10/2026
    Mótaröð Keiliskylfinga 65+ lauk með lokahófi og verðlaunaafhendingu