Elva sigraði í Mosfellsbæ
Elva sigraði í Mosfellsbæ
Hundrað krakkar á aldrinum 15-18 ára tóku þátt í Unglingamótinu í Mosfellsbæ síðustu helgi. Mótið var 54 holur en spiluðu allir 36 holur á laugardeginum og 18 holur á sunnudeginum fyrir þau sem náðu niðurskurði.
Á Unglingamótaröðinni er keppt í flokkum 17-18 ára og 15-16 ára stúlkna og drengja en í þessum fjórum flokkum voru samtals 23 kylfingar frá Keili.
Í flokki 17-18 ára stúlkna voru Sigurást Júlía Arnarsdóttir og Tinna Alexía Harðardóttir með bestu frammistöðuna úr Keili en þær enduðu jafnar í sjöunda sæti og Óliver Elí Björnsson efstur drengjana í fjórða sæti.
Í drengjaflokki 15-16 ára endaði Máni Freyr Vigfússon í þriðja sæti efstur Keilismanna eftir flotta endurkomu en Máni var í tólfta sæti eftir fyrsta hring.
Elva María Jónsdóttir úr Keili spilaði besta allra í flokki 15-16 ára stúlkna og vann sinn flokk með hvorki meira né minna en 25 höggum en þetta er fyrsti sigur Elvu á Unglingamótaröðinni. Til hamingju Elva!
Keilir var með 17 iðkendur sem náðu niðurskurði sem var flest allra klúbba en einungis 70% keppenda komast í gegnum niðurskurð.
Næsta mót hjá unglingunum byrjar á morgun þegar Icewear mótið verður spilað í GKG.

