ICEWEAR BIKARINN: Jón og Óttar sigruðu á GOLF14
ICEWEAR BIKARINN: Jón og Óttar sigruðu á GOLF14
Icewear mótið á GOLF14 mótaröðinni var haldið af Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar þessa helgina. Þetta er annað mótið á GOLF14 mótaröðinni en fyrsta mótið fór fram á Nesvelli í vikuna áður: Átján Keiliskrakkar kepptu á Nesinu – Golfklúbburinn Keilir
Í þessu móti var 13-14 ára flokknum skipt í tvennt þannig að þáttakendur með undir 30 í forgjöf fengu að spila 18 holur hringi á Leirdalsvelli á meðan yfir 30 í forgjöf spiluðu 9 holu hringi á Mýrinni. Þá spiluðu allir flokkar 12 ára og yngri einnig á Mýrinni en allir flokkar spiluðu tvo hringi yfir tvo daga.
Í flokki 10 ára og yngri drengja bar Óttar Elí Friðbjörnsson úr Golfklúbbnum Keili sigur úr býtum eftir stöðuga frammistöðu. Hann var jafn í fyrsta sæti eftir hringina tvo og þurfti bráðabana til þessa að knýja fram lokaniðurstöðu sem Óttar sigraði. Engin stelpa spilaði í flokki 10 ára og yngri.
Í flokki 12 ára og yngri drengja var Örvar Ingi Theodórsson á besta skorinu úr Keili en Örvar endaði í sjötta sæti í mótinu. Þá var Þórunn Emma McGinley efst af stúlkunum okkar en hún endaði í áttunda sæti í sínum flokki.
Í flokki 14 ára og yngri á Mýrinni var Hilmar Jósefsson Linnet efstur Keilisdrengja en Hilmar endaði í fimmta sæti. Í sama flokki stúlknamegin náði Viktoría Mörk Theodórsdóttir úr Keili að næla sér í þriðja sætið eftir flottan endasprett.
Í flokki 14 ára og yngri í Leirdalnum sigraði Jón Ómar Sveinsson úr Keili. Jón í öðru sæti eftir fyrri hringinn en hann náði að koma sér snemma í forystu á lokahringnum og endaði á að vinna mótið með 6 höggum. Í stúlknaflokknum endaði Sólveig Arnarsdóttir úr Keili jöfn í fimmta sæti.
Mótið var virkilega vel haldið en alls tóku 280 krakkar þátt í mótinu. Keilir var þar með 23 af þeim. Næstu mót í þessum aldursflokkum eru Íslandsmót Golfklúbba 12 og 14 ára og yngri sem verða spiluð seinna í mánuðinum.

