09/06/2026

Golfleikjaskóli Keilis byrjar í vikunni

Golfleikjaskóli Keilis byrjar í vikunni

Nú eru grunnskólar bæjarins að klárast og Golfleikjaskóli Keilis að byrja í þessari viku með tveggja daga námskeiði á fimmtudag og föstudag 11 og 12 júní

Námskeiðin eru fyrir krakka á aldrinum 5-12 ára með áhuga á að kynnast golfíþróttinni á skemmtilegan og fjölbreyttan hátt. Lögð er áhersla á leiki, útiveru og tillitsemina sem einkennir íþróttina.

Yfirumsjón með námskeiðinu hafa Meistaraflokkskylfingar í klúbbnum með hjálp leiðbenda úr vinnuskóla Hafnarfjarðar sem eru allir iðkendur í íþróttastarfi Keilis.

Opið er fyrir skráningu á öll námskeiðin en skráning fyrir fyrsta námskeiðið lokar miðvikudagskvöldið 10 júní.

Námskeiðin eru kennd frá 9-12 á morgnana í sumar og biðjum við félagsmenn að taka vel á móti þessum nýjustu kylfingum klúbbsins.

Hægt er að skoða námskeiðin hér: Golfklúbburinn Keilir | Golfleikjaskólinn | Námskeið | Abler

Fyrirspurnir um námskeiðin sendast á birgir@keilir.is

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 14/07/2026
    Sveinskotsmótið á GOLF14 mótaröðinni
  • 01/07/2026
    Tveim mótum lokið á innanfélagsmótaröð barna og unglinga
  • 29/06/2026
    Tveir Íslandsmeistarar í Holukeppni frá Keili
  • 29/06/2026
    Stúlknasveit 18 ára og yngri í öðru sæti á Íslandsmótinu
  • 29/06/2026
    Drengjasveit 15-16 ára í þriðja sæti á Akranesi
  • 29/06/2026
    Fjör á Flúðum í Sveitakeppni 14 ára og yngri