29/06/2026

Fimm Keilissveitir kepptu í Sveitakeppni 12 ára og yngri

Fimm Keilissveitir kepptu í Sveitakeppni 12 ára og yngri

Íslandsmóti 12 ára og yngri var haldið dagana 18, 19 og 20 júní á Sveinskotsvelli, Korpúlfsstaðarvelli og Bakkakotsvelli.

Golfklúbburinn Keilir átti 5 sveitir í mótinu og kepptu þær sveitir í Hvítu, Gulu, Rauðu, Bláu og Gráu deildinni en samtals tóku þátt 31 kylfingur í mótinu frá Keili.

Krakkarnir stóðu sig vel, börðust fyrir hverju höggi og sýndu frábæra liðsheild. Liðið í Bláu deildinni náði þriðja sætinu og liðið í Gráu deildinni öðru sæti í sinni deild eftir tap í hörkuspennandi úrslitaleik.

Skemmtunin, einbeitingin og liðsandin skein af keppendunum mótsins eins og hægt er að sjá á myndunum.

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 29/06/2026
    Tveir Íslandsmeistarar í Holukeppni frá Keili
  • 29/06/2026
    Stúlknasveit 18 ára og yngri í öðru sæti á Íslandsmótinu
  • 29/06/2026
    Drengjasveit 15-16 ára í þriðja sæti á Akranesi
  • 29/06/2026
    Fjör á Flúðum í Sveitakeppni 14 ára og yngri
  • 09/06/2026
    Golfleikjaskóli Keilis byrjar í vikunni
  • 08/06/2026
    ICEWEAR BIKARINN: Elva sigraði aftur á Unglingamótaröðinni