11/09/2026

Haustfyrirkomulag rástímabókana

Haustfyrirkomulag rástímabókana

Þar sem að dagarnir styttast nú óðum ætlum við að breyta skráningarfyrirkomulagi okkar á rástímum frá og með mánudeginum 14. september til þess að koma til móts við okkar félaga þannig að sem flestir komast í golf.

Við ætlum að hafa þetta þannig að kylfingar skrá sig áfram á 18 holur fram eftir degi, en svo þegar líður á seinni part dags er hægt að bóka sig á annað hvort fyrri eða seinni 9.

Rástímaskráning mun líta þá svona út:

Hvaleyrarvöllur 18 holur. 06:30 – 14:45

Hraunið (fyrri 9) 15:00 – 21:50. Þeir kylfingar sem bóka sig á þessum tíma og vilja spila 18 holur þurfa þá að bóka sig á rástíma á 10. teig.

Hvaleyrin (seinni 9) 17:10 – 21:50.

Allir rástímar sem kylfingar eru nú þegar skráðir á halda sér. Við þetta þurfum við að fjölga hámarksbókunum. Mun hver og einn geta verið með 4 virkar bókanir á hverjum velli (Hvaleyrarvöllur 18 holur, Hraunið og Hvaleyrin).

Til þess að hrinda þessari aðgerð af stað þurfum við að loka fyrir rástímakerfið í dag, föstudaginn 11. September milli 14:30 og 15:30.

Er það okkar von að þetta verði til þess að enn fleiri Keilisfélagar geti notið þess að spila golf á Hvaleyrarvelli þegar tekur að hausta.

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 07/10/2026
    Uppgjör keppnistímabilsins
  • 07/10/2026
    Framkvæmdir hafnar við stækkun golfskála Keilis
  • 02/10/2026
    Skert þjónusta í golfskálanum
  • 02/10/2026
    Mótaröð Keiliskylfinga 65+ lauk með lokahófi og verðlaunaafhendingu
  • 01/10/2026
    Stuð á uppskeruhófi Kvennamótaraðarinnar
  • 11/09/2026
    Umfangsmiklar haustframkvæmdir framundan hjá Keili