Umfangsmiklar haustframkvæmdir framundan hjá Keili
Umfangsmiklar haustframkvæmdir framundan hjá Keili
Kæru félagsmenn,
Fram undan eru fjölmörg spennandi verkefni á golfsvæðum Keilis sem munu bæta aðstöðu, leikupplifun og ásýnd vallanna okkar til framtíðar. Við viljum því upplýsa ykkur um helstu framkvæmdir sem eru á dagskrá á næstu mánuðum.
Nýir og stækkaðir teigar á Sveinskotsvelli
Nú þegar hefur verið opnað á nýja teiga á Sveinskotsvelli á 9. braut og hafa þeir fengið afar góðar viðtökur. Vinnan við endurbætur og stækkun teiga á vellinum heldur áfram og næst á dagskrá eru teigarnir á 2. holu. Sú framkvæmd mun jafnframt skapa aukið svigrúm til að stækka teigana á 8. holu og bæta þannig aðstöðu kylfinga enn frekar.
Endurbætur á 5. holu Hvaleyrarvallar
Fremstu teigarnir á 5. holu Hvaleyrarvallar verða færðir til. Ný staðsetning mun vera meira í stefnu á brautina, sem gefur betri yfirsýn yfir holuna og bætir upplifun kylfinga af upphafshöggi á þessari vinsælu holu.
Bætt salernisaðstaða á vellinum
Stjórn Keilis er um þessar mundir að skoða uppsetningu á nýju salerni á seinni níu holum Hvaleyrarvallar. Gert er ráð fyrir að nýja aðstaðan verði staðsett skammt frá fremsta teig 13. holu á Hvaleyrarvelli og jafnframt nálægt 4. og 5. flöt á Sveinskotsvelli. Með þessu verður þjónustan við kylfinga á báðum völlum stórbætt.
Samhliða þessu er hafin endurnýjun á núverandi salerni við 8. holu. Allt innra byrði verður endurnýjað, rýmið flísalagt og rafmagn lagt í húsið sem mun bæta bæði aðstöðu og notagildi til muna.
Landslagsmótun milli 15. og 18. holu
Í haust og vetur verður áfram unnið að landslagsgerð á svæðinu milli 15. og 18. holu á Hvaleyrarvelli. Uppgröftur frá byggingu nýja golfskálans verður nýttur til að endurmóta landslagið og skapa enn fallegra og heildstæðara umhverfi á þessum hluta vallarins.
Stækkun golfskála Keilis
Síðast en ekki síst er fram undan eitt umfangsmesta verkefni Keilis í langan tíma, stækkun golfskálans. Stefnt er að því að framkvæmdir hefjist 1. október næstkomandi. Með þessari uppbyggingu verður aðstaða félagsmanna, gesta og starfsmanna verulega bætt og félagið betur í stakk búið til að mæta vaxandi starfsemi á komandi árum.
Mikið framundan
Það er því ljóst að margt spennandi er fram undan hjá Keili. Allar þessar framkvæmdir eru liður í markvissri uppbyggingu sem miðar að því að bæta vallarsvæðið, þjónustu við kylfinga og heildarásýnd svæðisins. Við hlökkum til að sjá árangurinn skila sér á næstu misserum og þökkum félagsmönnum fyrir skilning og stuðning meðan á framkvæmdum stendur.
Kveðja,
Ingi Tómasson
Formaður Mannvirkjanefndar Keilis





