07/10/2026

Framkvæmdir hafnar við stækkun golfskála Keilis

Framkvæmdir hafnar við stækkun golfskála Keilis

Nú eru framkvæmdir við stækkun golfskála Keilis komnar á fullt skrið! 🏗️

Á næstu vikum mun verða nokkur umferð vinnuvéla og starfsemi á framkvæmdasvæðinu. Við biðjum því alla félagsmenn, gesti og aðra sem eiga leið um svæðið að sýna aðgát og fara varlega nærri framkvæmdunum. Mikilvægt er að virða allar merkingar og lokanir sem kunna að vera á svæðinu á meðan á verkinu stendur.

Gert er ráð fyrir að jarðvegsframkvæmdum ljúki þann 15. nóvember nk. og að því loknu hefst vinna við uppsteypu nýju viðbyggingarinnar.

🚧 Breytingar á umferð við golfskálann
Þegar þörf verður á auknum lokunum vegna framkvæmdanna verður umferð gangandi og akandi færð norðan megin við golfskálann. Nánari upplýsingar um framkvæmd þessarar breytingar og leiðbeiningar um umferð verða kynntar síðar.

📹 Fylgstu með framkvæmdunum
Unnið er að því að setja upp live feed frá framkvæmdasvæðinu þannig að félagsmenn geti fylgst með framvindu verkefnisins í rauntíma. Frekari upplýsingar um aðgang og útfærslu verða kynntar þegar nær dregur.

Við þökkum fyrir skilning, þolinmæði og stuðninginn á meðan á þessum mikilvægu framkvæmdum stendur. Það er spennandi að sjá framtíðarsýn Keilis taka á sig mynd! ⛳️

default

default

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 02/10/2026
    Skert þjónusta í golfskálanum
  • 02/10/2026
    Mótaröð Keiliskylfinga 65+ lauk með lokahófi og verðlaunaafhendingu
  • 01/10/2026
    Stuð á uppskeruhófi Kvennamótaraðarinnar
  • 11/09/2026
    Umfangsmiklar haustframkvæmdir framundan hjá Keili
  • 11/09/2026
    Haustfyrirkomulag rástímabókana
  • 10/09/2026
    Haustferð Keiliskvenna