30/10/2026

Hvaleyrarvöllur opnar aftur fyrir félagsmenn Keilis

Hvaleyrarvöllur opnar aftur fyrir félagsmenn Keilis

Í ljósi hagstæðs veðurs og hlýinda hefur verið ákveðið að opna aftur inn á Hvaleyrarvöll fyrir félagsmenn Keilis.

Starfsmenn vallarins eru í þessum töluðu orðum að taka nýjar holur og gera allt klárt. Við biðjum kylfinga því að sýna starfsmönnum tillitssemi

Opnað hefur verið fyrir rástímaskráningar í GolfBox og geta félagsmenn nú bókað sér rástíma með hefðbundnum hætti.


Mikilvægar ábendingar:

Förum varlega
Verið er að vinna víða um völlinn og því nauðsynlegt að sýna bæði starfsfólki og viðkvæmum svæðum sérstaka tillitssemi.


Vinnusvæði við golfskálann
Eins og flestir vita standa framkvæmdir yfir við golfskálann og næsta nágrenni hans. Kylfingar eru beðnir um að fara ekki um vinnusvæðið.

📍 Bæði bláa og gula leiðin sýnir hvernig hægt er að komast niður á 1. teig frá golfskálanum

Óvissa um framhaldið
Þrátt fyrir að völlurinn opni nú á ný er staðan áfram viðkvæm og háð veðri. Ef frost gerir vart við sig gæti þurft að loka vellinum aftur með mjög skömmum fyrirvara til að vernda vallarsvæðið.

Staðan verður metin daglega og allar breytingar eða lokanir verða auglýstar í GolfBox og á Facebook-síðu Keilis.

Við þökkum fyrir skilninginn, tillitssemina og hlökkum til að sjá ykkur á vellinum. ⛳️🏌️‍♂️🏌️‍♀️

 

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 07/10/2026
    Uppgjör keppnistímabilsins
  • 07/10/2026
    Framkvæmdir hafnar við stækkun golfskála Keilis
  • 02/10/2026
    Skert þjónusta í golfskálanum
  • 02/10/2026
    Mótaröð Keiliskylfinga 65+ lauk með lokahófi og verðlaunaafhendingu
  • 01/10/2026
    Stuð á uppskeruhófi Kvennamótaraðarinnar
  • 11/09/2026
    Umfangsmiklar haustframkvæmdir framundan hjá Keili