Æfingar barna- og unglingastarfsins að hefjast í Hraunkoti
Æfingar barna- og unglingastarfsins að hefjast í Hraunkoti
Frá og með 1. nóvember verða æfingaaðstöður Hraunkots fráteknar fyrir barna- og unglingastarf Keilis á tímabilinu kl. 16:00-19:00 á mánudögum, þriðjudögum, miðvikudögum og fimmtudögum.
Þetta á við um Nýja skýlið og púttsalina í Hvalalauginni. Markmiðið með þessari ráðstöfun er að tryggja öryggi þátttakenda og skapa sem bestar aðstæður fyrir æfingar yfir vetrarmánuðina.
Við viljum jafnframt benda á að golfhermarnir og Gamla skýlið verða áfram opin félagsmönnum og öðrum gestum á þessum tíma.
Við þökkum fyrir skilninginn og stuðninginn við íþróttastarf félagsins.

