Aðalfundur Keilis 2026
Aðalfundur Keilis 2026
Aðalfundur Golfklúbbsins Keilis 2026 verður haldinn þriðjudaginn 8. desember n.k. í Golfskála Keilis.
Fundurinn hefst stundvíslega klukkan 19:30.
Dagskrá verður kynnt síðar
Samkvæmt 8. grein laga Keilis þá skal stjórn kjörin á Aðalfundi.
Stjórn Keilis skipa sjö félagsmenn. Stjórnin skal kosin á aðalfundi. Formann stjórnar skal kjósa sérstaklega til eins árs í senn. Meðstjórnendur skulu kosnir til tveggja ára, þrír hvert ár. Framboð til stjórnar skulu berast skrifstofu Keilis eigi síðar en viku fyrir aðalfund.
Núverandi stjórn Keilis skipar:
Guðmundur Örn Óskarsson (formaður)
Guðríður Hjördís Baldursdóttir (varaformaður)
Bjarni Þór Gunnlaugsson (gjaldkeri)
Már Sveinbjörnsson (ritari)
Lilja Guðríður Karlsdóttir
Ingi Tómasson
Sveinn Sigurbergsson
Framboð til stjórnar verða kynnt á næstunni.

