11/12/2015

Arnar endurkjörinn formaður Keilis

Arnar endurkjörinn formaður Keilis

Fjörutíu félagar mættu á aðalfund Keilis sem haldinn var í golfskálanum í gærkvöldi, en Jón Albert Marinósson stýrði fundinum af mikilli röggsemi.

Helstu rekstrarniðurstöður voru að hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði var 21.3 m.kr og hagnaður ársins nam 7 m.kr. Félögum fjölgaði svo á milli ára um 59, aðallega í hópi yngstu iðkenda.

Hér má sjá ársskýrsluna og reikninga.

Stjórn Keilis var eftirfarandi kjörin fyrir árið 2016:

Formaður: Arnar Atlason
Fyrir í aðalstjórn: Guðmundur Óskarsson og Ellý Erlingsdóttir
Aðalstjórn til tveggja ára: Davíð Arnar Þórsson, Guðbjörg Erna Guðmundsdóttir og Daði Janusson
Aðalstjórn til eins árs: Sveinn Sigurbergsson

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 05/07/2026
    Meistaramót Keilis hafið
  • 26/06/2026
    Golfreglu pöbbkviss fimmtudaginn 2. júlí
  • 23/06/2026
    Meistaramót Keilis 2026
  • 15/06/2026
    Úrslit úr Opna Kristals mótinu
  • 04/06/2026
    Opna Kristals mótið – Skráning hefst í dag
  • 01/06/2026
    Átján Keiliskrakkar kepptu á Nesinu