Boltakort í jólapakkann

Við erum að selja gjafabréf fyrir boltainneign í Hraunkoti fyrir jólin.

Við seljum fjögur misstór boltakort.

  • Silfurkort– 3.550kr
  • Gullkort– 5.700kr
  • Platinumkort– 11.400kr
  • Demantskort– 28.500kr

Tilvalið til að lauma með í jólapakkann.

Hægt er að fá frekari upplýsingar með að senda tölvupóst á keilir@keilir.is

 

Golfhermarnir opnir um hátíðirnar

Hermarnir í Hraunkoti verða opnir yfir hátíðirnar. Núna er komin ný bókunarsíða þar sem hægt er að bóka og greiða fyrir herminn.

Kylfingar fá aðgang að aðstöðunni með kóða sem berst þeim í tölvupósti klukkutíma áður en bókaður tími hefst.

Búið er að setja upp leiðbeiningar sem hægt er að styðja sig við þegar verið er að setja upp leikinn.

Hægt er að bóka tíma á boka.keilir.is

Opnunartími golfhermana er milli 06:00 og 00:00