29/06/2026

Drengjasveit 15-16 ára í þriðja sæti á Akranesi

Drengjasveit 15-16 ára í þriðja sæti á Akranesi

Fjórar drengjasveitir spiluðu á Íslandsmóti Golfklúbba fyrir hönd Golfklúbbsins Keilis dagana 24. – 26. júní.

Í flokki 17-18 ára spiluðu tvær sveitir og endaði B sveitin í sjöunda eftir að vinna báða sína leiki í C riðli og A sveitin í sjötta sæti eftir að tapa naumlega í bráðabana fyrir fimmta sætinu.

Í flokki 15-16 ára spiluðu einnig tvær sveitir og endaði B sveitin þar í sjötta á meðan A sveitin endaði í þriðja sæti eftir að sigra sveit GR í úrslitaleik uppá þriðja sætið.

Arnar Freyr Jóhannsson, Flosi Freyr Ingvarsson, Halldór Jóhannsson, Lúðvík Kemp Friðgeirsson Máni Freyr Vigfússon og Hilmir Ingvi Heimisson voru í þriðja sætis liðinu.

 

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 12/08/2026
    Óliver Elí komst í gegn á Boys Amateur Championship
  • 11/08/2026
    Keilir í öðru sæti í Íslandsmóti 65 ára og eldri kvenna
  • 10/08/2026
    Sveitir Keilis í Íslandsmóti Golfklúbba 2026
  • 05/08/2026
    Keiliskrakkar skemmtu sér vel á Gulla Arnar Mótinu
  • 26/07/2026
    Þórdís varði titilinn á Íslandsmóti 50 plús
  • 26/07/2026
    Daníel Ísak braut ísinn á Mótaröð Þeirra Bestu