03/06/2026

Elva sigraði í Mosfellsbæ

Elva sigraði í Mosfellsbæ

Hundrað krakkar á aldrinum 15-18 ára tóku þátt í Unglingamótinu í Mosfellsbæ síðustu helgi. Mótið var 54 holur en spiluðu allir 36 holur á laugardeginum og 18 holur á sunnudeginum fyrir þau sem náðu niðurskurði.

Á Unglingamótaröðinni er keppt í flokkum 17-18 ára og 15-16 ára stúlkna og drengja en í þessum fjórum flokkum voru samtals 23 kylfingar frá Keili.

Í flokki 17-18 ára stúlkna voru Sigurást Júlía Arnarsdóttir og Tinna Alexía Harðardóttir með bestu frammistöðuna úr Keili en þær enduðu jafnar í sjöunda sæti og Óliver Elí Björnsson efstur drengjana í fjórða sæti.

Í drengjaflokki 15-16 ára endaði Máni Freyr Vigfússon í þriðja sæti efstur Keilismanna eftir flotta endurkomu en Máni var í tólfta sæti eftir fyrsta hring.

Elva María Jónsdóttir úr Keili spilaði besta allra í flokki 15-16 ára stúlkna og vann sinn flokk með hvorki meira né minna en 25 höggum en þetta er fyrsti sigur Elvu á Unglingamótaröðinni. Til hamingju Elva!

Keilir var með 17 iðkendur sem náðu niðurskurði sem var flest allra klúbba en einungis 70% keppenda komast í gegnum niðurskurð.

Næsta mót hjá unglingunum byrjar á morgun þegar Icewear mótið verður spilað í GKG.

 

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 01/07/2026
    Tveim mótum lokið á innanfélagsmótaröð barna og unglinga
  • 29/06/2026
    Tveir Íslandsmeistarar í Holukeppni frá Keili
  • 29/06/2026
    Stúlknasveit 18 ára og yngri í öðru sæti á Íslandsmótinu
  • 29/06/2026
    Drengjasveit 15-16 ára í þriðja sæti á Akranesi
  • 29/06/2026
    Fjör á Flúðum í Sveitakeppni 14 ára og yngri
  • 29/06/2026
    Fimm Keilissveitir kepptu í Sveitakeppni 12 ára og yngri