23/06/2025

Íslandsmót 12 ára og yngri: Fjórar sveitir frá Keili

Íslandsmót 12 ára og yngri: Fjórar sveitir frá Keili

Íslandsmót Golfklúbba 12 ára og yngri var haldið dagana 19-21 júní á golfvöllum GR, GM og GKG. Golfklúbburinn Keilir var með fjórar sveitir í mótinu, þrjár drengjasveitir og eina stúlknasveit.

Í mótinu er spilað í 6 mismunandi deildum og í öllum deildunum er spilað Texas Scramble fyrirkomulag á milli tveggja klúbba. Samtals voru 26 sveitir með í mótinu en mótið hefur verið haldið undanfarin ár með mikilli ánægju keppenda og foreldra.

Sveitir Keilis kepptu í Gráu, Rauðu, Gulu og Hvítu deildinni en í ár var í fyrsta skipti var spilað upp á Íslandsmeistaratitil Golfklúbba stúlkna 12 ára og yngri en það var í gulu deildinni.

Í gulu deildinni spiluðu Elísabet Lea Dýradóttir, Sólveig Arnardóttir, Þórunn Emma McGinley, María Aðalheiður Thorarensen, Ása Margrét Þórsdóttir og Manúela Ýr Pálmadóttir fyrir hönd Keilis en Karen Sævarsdóttir golfkennari var liðstjóri stelpnanna. Þær stóðu sig með stakri prýði og enduðu í þriðja sæti í mótinu eftir glæsilega frammistöðu.

Í rauðu deildinni voru það Aron Logi Sigurþórsson, Sólberg Elí Jónsson, Patrekur Valgeirsson og Björgvin Rúnar Guðvarðarson sem spiluðu fyrir Keili og náðu einnig þriðja sæti í sinni deild. Hjalti Jóhannsson afrekskylfingur úr Keili var liðstjóri fyrir strákana rauða liðinu.

Þá var Keilir einnig með sveit í hvítu deildinni þar sem Mikael Leó Hauksson, Guðmundur Jóel Jónsson, Birkir Már Andrasson og Óttar Elí Friðbjörnsson spiluðu en Gunnar Geir Gústafsson golfkennari var liðstjóri liðsins. Hvíta deildin er forgjafarlægsta deildin í mótinu sem spilar upp á Íslandsmeistaratitil drengja. Keilir með yngstu sveitina sem komst þangað inn en þeir náðu ekki á verðlaunapall þetta árið. Þeir voru engu að síður klúbbnum til sóma í sinni framkomu og spilamennsku og eiga allir möguleika að spila í sama aldursflokki á næsta ári til að gera atlögu að titlinum aftur.

Í gráu deildinni voru það Sigurjón Kristinn Gunnarsson, Jökull Helgason, Jón Björn Skúlason, Arnór Kári Guðvarðarson og Örvar Ingi Theodórsson sem spiluðu fyrir Keili með Gunnar Þór Sigurjónsson foreldri sem liðstjóra. Þeir gerðu sér lítið fyrir og sigruðu Gráu deildina með mjög sannfærandi spilamennsku og frábærri liðsheild. Hægt verður að sjá bikarinn þeirra í Golfskála Keilis næsta árið.

Öruggt er að segja að krakkarnir stóðu sig gríðarlega vel, margar góðar minningar voru gerðar á golfvellinum og sambönd liðsfélaga og þjálfara styrktust í þessu skemmtilega golfmóti. Mótið verður haldið aftur að ári, en þá mun einn af þrem hringjunum vera spilaður á Sveinkotsvelli í Golfklúbbnum Keili.

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 26/05/2025
    Stór keppnishelgi að baki
  • 02/05/2025
    Vítasvæði á Hvaleyrinni
  • 22/04/2025
    Golfskóli Keilis 2025
  • 21/04/2025
    Þrettán úr Keili kepptu í Portúgal
  • 04/03/2025
    Vilt þú vinna með okkur í sumar?
  • 04/03/2025
    Íslandsmótið í golfi 2025 á Hvaleyrarvelli