02/05/2013

Opnun golfvallar uppfært

Opnun golfvallar uppfært

Það ætti varla að hafa farið framhjá neinum kylfingi að veðurfar undanfarna daga hefur ekki verið hagstætt.  Mikil næturfrost, allt niður í -6° C, hafa hægt verulega á vorinu.  Spár fyrir næstu daga gera ráð fyrir því sama.  Einnig er spáð sólríku veðri og litlum vind yfir daginn, sem eru fullkomnar aðstæður fyrir glugga- og dagdrauma golf, en því miður ekki góðar aðstæður til að opna golfvöll við.
Í ljósi veðurfars og spáa, þá höfum við tekið ákvörðun að færa opnun vallarins til fimmtudagsins 9. maí (uppstigningardagur).  Hin árlegi vinnudagur fer þá fram um morguninn,  og síðan verður opnunarmót haldið.
Við vonum að kylfingar sýni þessu skilning og vonum að haustið verði okkur gott, svo að við getum lengt golftímabilið í annan endann.

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 01/07/2025
    Rásímaáætlun í Meistaramótinu
  • 26/06/2025
    Minningarmót Guðmundar Friðriks og Kristínar Páls
  • 24/06/2025
    Meistaramót Keilis 2025 – skráning hefst 25. júní
  • 24/06/2025
    Nýjar staðarreglur taka í gildi
  • 12/06/2025
    Jónsmessan 2025
  • 04/06/2025
    Bikarkeppni Keilis í samstarfi við Hjarta Hafnarfjarðar