Hin árlega skötuveisla verður haldin í golfskála Keilis á þorláksmessu, 23. desember n.k.

Í ár mun hann Láki í Salthúsinu í Grindavík sjá um herlegheitin og kostar 5000 krónur fyrir manninn

Allur ágóði af skötunni rennur til barna og unglingastarfs Keilis.

Á boðstólum er kæst skata fyrir byrjendur og lengra komna, saltfiskur og allt sem þarf til að koma þér í jólaskapið. Frítt kaffi og svo eru drykkir seldir á barnum.

Húsið opnar 11:15, vinsamlegast bókið tíma á netfanginu vikar@keilir.is