26/05/2025

Stór keppnishelgi að baki

Stór keppnishelgi að baki

Keilir var með keppendur á 4 mótaröðum GSÍ um helgina. Þá fór fram mót á Landsmótaröð Eldri Kylfinga í Reykjavík, Mótaröð Þeirra Bestu í Þorlákshöfn, og Unglinga og GOLF14 mótaraðirnar í Sandgerði. Þá spilaði Guðrún Brá Björgvinsdóttir einnig í Frakklandi á Evrópumótaröð kvenna.

Guðrún Brá

Atvinnukylfingurinn okkar Guðrún Brá spilaði á Jabra Ladies Open í Frakklandi á Evrópumótaröðinni daganna 22-24. maí, en hún var að spila aðra helgina í röð á Evrópumótaröðinni eftir að hafa verið í 53. sæti í síðustu viku. Hún náði ekki jafn góðu gengi þessa vikuna og endaði mótið jöfn í 85. sæti, tveimur höggum frá því að ná niðurskurðinum eftir tvo hringi.

Hægt er að fylgjast með fréttum og ferðalögum af Guðrúnu á Facebook síðu hennar hér: Facebook

Unglingamótaröðin

Samtals spiluðu 14 kylfingar fyrir hönd Golfklúbbsins Keilis í mótinu, 9 í drengjaflokki og 5 í stúlknaflokki. Í flokkum 15-16 ára drengja var Máni Freyr Vigfússon í öðru sæti, en Óliver Elí Björnsson og Halldór Jóhannsson voru einnig meðal 5 efstu í flokknum. Þá var Elva María í öðru sæti í flokki 15-16 ára stúlkna eftir að hafa spilað frábæran annan hring á tveimur undir pari, sem var jafn besta hring allra í stúlknaflokki í mótinu. Í flokkum 17-18 ára drengja var Hjalti Jóhannsson jafn í fjórða sæti og Víkingur Óli Eyjólfsson í því sjöunda. Í flokki 17-18 ára stúlkna spilaði Sigurást Júlía Arnarsdóttir best en hún náði 3. sæti í sínum flokki eftir stöðuga og góða spilamennsku. Í mótinu spiluðu kylfingar Keilis samtals 10 hringi undir pari í mótinu. Hreint út sagt mögnuð spilamennska hjá okkar krökkum. Þetta var annað mótið á Unglingamótaröðinni í sumar en næsta mót er Nettó mótið í GKG sem spilað verður 5-7 júní.

GOLF14

Þá fór fram fyrsta mótið á GOLF14 mótaröðinni um helgina. Einnig voru 14 kylfingar úr Keili sem tóku þótt í GOLF 14 mótinu en þá voru 6 stúlkur og 8 drengir með. Í flokki 12 ára og lenti Sólveig Arnarsdóttir í öðru sæti í stúlknaflokknum og Sindri Þór Eyþórsson í níunda sæti í drengjaflokknum. Í flokkum 14 ára og yngri var spilað í 9 holu og 36 holu flokkum en í 9 holu flokknum var Birkir Heiðar Daníelsson í öðru sæti, tveimur höggum frá efsta sæti, en Keili átti engan keppanda í 9 holu flokki stúlkna. Í 36 holu flokki 14 ára og yngri náði Hrefna Líf Steinsdóttir að lenda í þriðja sæti, og Arnar Freyr Jóhannsson var í fjórða sæti eftir hring undir pari seinni hringnum!

Mótaröð þeirra bestu

8 kylfingar frá Keili spiluðu á mótaröð þeirra bestu um helgina, 2 konur og 6 karlar. Hafdís Alda Jóhannsdóttir spilaði stöðugt og gott golf í mótinu og náði öðru sætinu, en leikið var í PRO-AM breyttri punktakeppni í mótinu. Í karlaflokki spilaði best Keilismanna Birgir Björn Magnússon en hann var í ellefta sæti. Þá er búið að ljúka báðum Vormótum tímabilsins 2025 á Mótaröð Þeirra Bestu og næst er fyrsta stórmót ársins, Hvaleyrarbikarinn.

LEK mótaröðin

Í flokkum til spilameistara í flokkum 50+ voru 15 kylfingar frá Keili með í mótinu. Af þeim voru 12 karlar og 3 konur en mótið fór fram á Korpúlfstaðarvelli í Reykjavík. Í kvennaflokki spilaði Þórdís Geirsdóttir best allra og vann með 3 höggum, en Anna Snædís Sigmarsdóttir náði einnig fjórða sætinu. Í karla flokki spilaði Halldór Ásgrímur Ingólfsson best úr Keili en hann endaði jafn í fjórða sæti.

Næsta verkefni er Hvaleyrarbikarinn á Mótaröð Þeirra Bestu sem heldur verður á heimavelli daganna 29. maí til 1. júní.

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 02/05/2025
    Vítasvæði á Hvaleyrinni
  • 22/04/2025
    Golfskóli Keilis 2025
  • 21/04/2025
    Þrettán úr Keili kepptu í Portúgal
  • 04/03/2025
    Vilt þú vinna með okkur í sumar?
  • 04/03/2025
    Íslandsmótið í golfi 2025 á Hvaleyrarvelli
  • 03/02/2025
    7 fulltúar Keilis í landsliðsferð GSÍ