01/07/2026

Tveim mótum lokið á innanfélagsmótaröð barna og unglinga

Tveim mótum lokið á innanfélagsmótaröð barna og unglinga

Innanfélagsmótaröð barna og unglinga er farin af stað og eru tvö mót búinn af sex sem verða spiluð í sumar. Keilir heldur mótaröðina með Golfklúbbnum Oddi en mótaröðin er hönnuð fyrir þá krakka sem eru að taka sín fyrstu skref í keppnisgolfi.

Í gær fór fram Sbarro Mót 1 í rigningu, rok og erfiðar aðstæður. Krakkarnir náðu þrátt fyrir það öll að klára hringinn eftir góða baráttu fengu allir keppendur gjafabréf frá Sbarro í teiggjöf og pizzu strax að leik loknum en Sbarro styrkir öll 3 mótin á Sveinskotsvelli á mótaröðinni þetta árið.

Á mótaröðinni eru veitt verðlaun fyrir lægsta skor án forgjafar í hverjum flokki og dregið úr einu skorkoti. Kept er í flokkum 10, 12, 14 og 18 ára og yngri en þetta er fyrsta árið sem keppt er í flokki 18 ára og yngri.

Í flokki 10 ára og yngri drengja var Óttar Elí Friðbjörnsson með lægsta skorið í fyrsta mótinu og Jóhann Karl Ingvarsson með lægsta skorið í öðru mótinu. Hjá 10 ára og yngri stúlkum hefur Elísa Lind Egilsdóttir verið með lægsta skor stúlkna á báðum mótunum.

Í flokki 12 ára og yngri drengja var Eyþór Kári Stefánsson með lægsta skorið í fyrsta mótinu og í öðru mótinu spilaði Sólberg Elí Jónsson . Í stúlknaflokki 12 ára og yngri var Thelma Clausen Halldórsdóttir með lægsta skorið fyrsta mótinu og Ásta Sigríður Egilsdóttir í öðru mótinu en þær eru báðar í Oddi.

Í flokki 14 ára voru Aron Berg og Aron Snær Pálsson með lægst skorin í fyrstu tveimur mótunum í drengjaflokki og Thelma Lind Oddsdóttir og Edda Friðriksdóttir í stúlknaflokki

Þá hafa Sigurjón Tumi og Baldur Samir Hassan verið með lægstu skor drengja í 18 ára og yngri en engar stelpur hafa tekið þátt hingað til í þeim aldursflokki.

Næsta mót á þessari mótaröð verður 14. júlí á Sveinskotsvelli.

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 29/06/2026
    Tveir Íslandsmeistarar í Holukeppni frá Keili
  • 29/06/2026
    Stúlknasveit 18 ára og yngri í öðru sæti á Íslandsmótinu
  • 29/06/2026
    Drengjasveit 15-16 ára í þriðja sæti á Akranesi
  • 29/06/2026
    Fjör á Flúðum í Sveitakeppni 14 ára og yngri
  • 29/06/2026
    Fimm Keilissveitir kepptu í Sveitakeppni 12 ára og yngri
  • 09/06/2026
    Golfleikjaskóli Keilis byrjar í vikunni