Tveir Íslandsmeistarar í Holukeppni frá Keili
Tveir Íslandsmeistarar í Holukeppni frá Keili
Dagana 19 – 21 júní fór fram Íslandsmótið í Holukeppni sem er eitt af tveimur Íslandsmótum einstaklinga á mótaskrá GSÍ hvert ár.
Þetta mót byrjar á 36 holu höggleiksdegi þar sem áfram komast 16 keppendur af 84 í byrjum. Þaðan er spiluð holukeppni í útsláttarfyrirkomulagi þangað til einn stendur eftir sem sigurvegari.
Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Birgir Björn Magnússon úr Golfklúbbnum Keili sigruðu í kvenna og karlaflokki en það hefur ekki gerst síðan Hlynur Geir Hjartarsson og Ásta Birna Magnúsdóttir unnu mótið í sitt hvorum flokknum árið 2008 á Korpúlfsstöðum.
Nú er tímabilið hálfnað á GSÍ mótaröðinni en þá er eftir Hvaleyrarbikarinn 17-19 júlí, Lexus Bikarinn 24-26 júlí og Íslandsmótið í Höggleik sem fer fram 6-9 ágúst á Korpúlfsstaðarvelli.
Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!
Aðrar fréttir
Stúlknasveit 18 ára og yngri í öðru sæti á Íslandsmótinu
Drengjasveit 15-16 ára í þriðja sæti á Akranesi
Fjör á Flúðum í Sveitakeppni 14 ára og yngri
Fimm Keilissveitir kepptu í Sveitakeppni 12 ára og yngri
Golfleikjaskóli Keilis byrjar í vikunni
ICEWEAR BIKARINN: Elva sigraði aftur á Unglingamótaröðinni

