Tveir slógu draumahögg í ferðum Keilis
Tveir slógu draumahögg í ferðum Keilis
Í keppnis og æfingaferðum Golfklúbbsins Keilis sem farnar voru í lok mars og byrjun apríl var mikil golf, mikil skemmtun og mörg góð högg.
Hinsvegar voru tvö högg sem stóðu upp úr, en tveir iðkendur Keilis náðu að fara holu í höggi á meðan ferðunum stóð yfir.
Óliver Elí Björnsson var að keppa í GJG Junior Internationals á PGA Aroeira 1 á öðrum hring þegar hann fór holu í höggi á þrettándu holu dagsins, sem var fjórða hola vallarins. Hægt er að sjá ótrúlegt skor Ólivers á hringnum hér: GJG LIVE SCORING (Tournament ID: 367)
Sölvi Leó Sigfússon náði sama afreki á 23. holu Ficus vallarins á Costa Ballena svæðinu, en hann sló höggið í Texas Scramble móti sem spilað var á þessum degi sem iðkendur og foreldrar spiluðu saman í á þessum degi.
Við óskum þessum drengjum innilega til hamingju með afrekið og hlökkum til að sjá fleiri kylfinga í Keili fara holu í höggi í sumar!

