Í dag var haldið fyrsta opna mót sumarsins á Hvaleyrarvelli. 171 kylfingur mætti til að taka þátt í opna Icelandair Golfersmótinu. Smá Rignarúði tók á móti okkur í morgunsárið. En fljótlega kom fyrirmyndar veður og þökkum við veðurguðunum kærlega fyrir það. Mikill áhugi var á mótinu strax og þurftum við að bætta við rástímum og var byrjað kl 07:00 í morgun. Verðlaun voru glæsileg að vanda og þökkum við Icelandair Golfers fyrir flott samstarf. Golfklúbburinn Keilir þakkar öllum fyrir skemmtilegan og ánægjulegan dag. Verðlaunahafar munu fá senta vinninga sína á E-mail fljótlega eftir helgi. Úrslit mótsins urðu eftirfarandi:

Besta skor:
Andri Þór Björnsson GR 66 högg Evrópumiði með Icelandair
Punktakeppni:
1. Sæti Daníel Ísak Steinarsson GK 43 punktar Evrópumiði með Icelandair
2. Sæti Hjörtur Ingþórsson GR 40 punktar Evrópumiði með Icelandair
3. sæti Siggeir Vilhjálmsson GSE 39 punktar 50.000 kr Inneign hjá Icelandair
4. Sæti Sigurður F. Guðmundsson GR 39 punktar 50.000 kr Inneign hjá Icelandair
5. Sæti Sigurþór Jónsson GK 39 punktar 15.000 kr Úttekt Golfverslun Keilis
Næst holu:
4. Braut Kjartan Einarsson 1,64 m 15.000 kr Úttekt Golfverslun Keilis
6. Braut Atli Kolbeinn 1,0 m 15.000 kr Úttekt Golfverslun Keilis
10. Braut Gísli Guðni Hall 2,02 m 50.000 kr Inneign hjá Icelandair
16. Braut Rósant Birgisson 55 cm 50.000 kr Inneign hjá Icelandair

icelandair_golfer_2016