Guðrún Brá á lokaúrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina.
Guðrún Brá á lokaúrtökumóti fyrir Evrópumótaröðina.
Í dag lauk Guðrún Brá Björgvinsdóttir atvinnukylfingur í Keili leik á lokaúrtökumóti fyrir Evrópsku mótaröðinu sem fram fór í Marokkó. Hún komst í gegnum fyrri niðurskurðinn eftir fjóra hringi með því að leika á 73-72-72-73.
Í dag var leikinn fimmti og síðasti hringurinn og lék Guðrún Brá á 73 höggum og endaði á plús þremur í heildina og varð jöfn í 52. sæti.
Alls léku 115 kylfingar um 25 sæti á evrópsku mótaröðinni. Guðrún hefði þurft að leika á þremur undir pari í heildina til að fá réttinn til að keppa á bestu golfmótaröð kvenna í Evrópu.
Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!
Aðrar fréttir
Nýr búnaður og lægri verð í hermunum í Hraunkoti
Framlengdur skráningarfrestur í Keilisferðina til Fairplay
Breyttar áherslur í mótahaldi hjá Golfklúbbnum Keili
Happdrætti barna- og ungmennastarfs Keilis
Framkvæmdum lokið á nýrri starfsmannaaðstöðu og verkstæði
Happdrætti til styrktar æfingaferðar barna- og unglingastarfs Keilis

