23/04/2026

Vel heppnaðar keppnis- og æfingaferðir

Vel heppnaðar keppnis- og æfingaferðir

Nýlega fóru iðkendur úr Golfklúbbnum Keili í keppnis og æfingaferðir til Portúgal og Spánar. Í lok mars fóru 12 iðkendur Keilis til Portúgal að keppa á Global Junior Golf mótaröðinni en þar var keppt á tveimur mótum á PGA Aroeira svæðinu.

Birkir Thor, Bjarki Hrafn, Elva María, Halldór Jóhannsson, Hjalti Jóhannsson, Hrafn Valgeirsson, Máni Freyr, Óliver Elí, Sigurást Júlía, Tinna Alexía og Víkingur Óli tóku þátt í mótunum og Birgir Björn Magnússon íþróttastjóri var fararstjóri. Þá voru Elva, Halldór, Máni og Óliver hluti af landsliðshópnum sem spilaði í mótinu: Landsliðshópur GSÍ keppir á Global Junior Golf móti í Portúgal – Golfsamband Íslands.

Strákamegin spilaði Óliver Elí best í báðum mótunum. Í fyrra mótinu var Óliver í öðru sæti í flokki 18 ára og yngri og í því seinna endaði hann í fjórða sæti, gaman að segja frá því að Óliver fór holu í höggi á öðrum hring!

Hjá stelpunum okkar spilaði Elva María best í fyrsta mótinu þar sem hún var í fimmta sæti og í seinna mótinu var Tinna Alexía best í sjöunda sæti. Krakkarnir okkar stóðu sig allir vel og ferðuðust beint úr mótunum til Spánar til að taka þátt í æfingaferðum Keilis.

Í æfingaferðum Keilis tóku 55 iðkendur þátt og 27 foreldrar en farnar voru tvær ferðir á sama tíma. Annars vegar voru 39 iðkendur sem fóru til Costa Ballena með 27 foreldra og 16 iðkendur fóru til Fairplay með engan foreldrahóp.

Þjálfarar í ferðunum á vegum Keilis voru Birgir Björn Magnússon, Axel Bóasson, Karen Sævarsdóttir, Helga Lind Þóreyjardóttir og Gunnar Geir Gústafsson. Áhersla ferðanna var sú sama á báðum stöðum, að spila og æfa golf við góðar aðstæður, undirbúa kylfingana okkar fyrir komandi sumar og hafa gaman saman.

Allar þessar ferðir heppnuðust vel og iðkendurnir okkar voru klúbbnum til sóma með hegðun sinni og spilamennsku. Þau eru heldur betur tilbúin í golfsumarið!

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 23/04/2026
    Staðan á völlunum
  • 23/03/2026
    Kynning á foreldraráði Keilis
  • 12/03/2026
    Nýr búnaður og lægri verð í hermunum í Hraunkoti
  • 11/03/2026
    Framlengdur skráningarfrestur í Keilisferðina til Fairplay
  • 10/03/2026
    Breyttar áherslur í mótahaldi hjá Golfklúbbnum Keili
  • 24/02/2026
    Happdrætti barna- og ungmennastarfs Keilis