01/05/2026

Áskoranir vetursins – Í tilefni dags verkalýðsins

Áskoranir vetursins – Í tilefni dags verkalýðsins

Í tilefni  af 1. maí þá er gaman að taka saman þær áskoranir sem vallarstarfsmenn okkar mæta eftir vetrardvala golfvallanna okkar. Hvaleyrarvöllur er stórt opið svæði sem margir fara um þó veturkonungur sé í hámæli. Því fylgja nokkrar áskoranir, því miður í vetur fór inná völlinn okkar eflaust ungur og efnilegur samborgari okkar á krossara og tætti upp 17. flötina. Einsog sést á myndunum þá urðu talsverðar skemmdir eftir þennan aðila, mikið lagði viðkomandi á sig og spólaði í gegnum 17. flötina þannig að stór sá á. Enn örvæntum ekki Rúnar okkar allrabesti hefur eytt fjölmörgum tímum í að laga flötina og verður hún í fínu lagi. Foreldrar þið sem gefið krökkunum þessi fínu hjól vinsamlegast biðjið þau um að halda sér fjarri golfvellinum.

Einnig eru glompurnar okkar undir miklu álagi í leysingum og vatnsburði sem fylgir löngum vetri. Aftur er það Rúnar sem hefur farið yfir þessar glompur og endurheimt útlit þeirra eftir mikla vinnu. (sjá myndir fyrir og eftir)

Nú er lokaundirbúningur í hámæli fyrir opnun, vallarstarfsmenn vinna dag og nótt og þegar þetta er skrifað eru allir starfsmenn mættir til vinnu núna 1. maí. Mikil áhersla hefur verið lögð á endurheimt brauta í hrauninu síðustu 3 ár. Við erum heldur betur farin að sjá árangur af þeirri vinnu. Önnur og þriðja bautin s.d eru farnar að sýna virkilegar framfarir og hefur orðið mikil breyting á grassamsetningu og gæðum þessara brauta. Einsog í myndabandinu sést þá er verið þessa dagana að sanda flatir og allar brautir í Hrauninu. Að sanda brautir tekur mikinn tíma og þarf til þess afkastamiklar vélar sem ganga nánast allan sólarhringinn. Enn öll þessi vinna er heldur betur þess virði og við erum farin að sjá árangur þess strits.

Það má líka taka það fram að Hvaleyrarvöllur og Sveinskotsvöllur eru að koma vel undan vetri og verður spennandi að sjá næstu daga hvernig þetta litla kuldakast mun fara með völlinn. Vonandi verðu hægt að hleypa golfi á vellina fljótlega, enn við munum upplýsa félagsmenn nánar um stöðu mála á næstu dögum.

Vallarstarfsmenn golfvalla okkar gegna lykilhlutverki í því að skapa þá upplifun sem við kylfingarnir njótum á hverjum degi. Þeir sinna krefjandi starfi við oft erfiðar aðstæður hér á Íslandi, þar sem fagmennska, þolinmæði og ástríða fyrir golfvöllum og náttúrunni fara saman. Með því að hugsa vel um flatir, brautir og umhverfi tryggja þeir að völlurinn sé ekki aðeins fallegur, heldur einnig leikvænn.

Á 1. maí, degi verkafólks, er tilefni til að minnast mikilvægs framlags þeirra. Vinna þeirra fer oft fram snemma morguns eða utan þess tíma sem við njótum golfvallarins, en án hennar væri hvorki hægt að halda uppi gæðum sem við fáum að njóta. Það er því mikilvægt að sýna þessum starfsmönnum virðingu og þakklæti fyrir þeirra ómetanlega framlag.

Gleðilegan verkalýðsdag!

Takk vallarstarfsmenn!

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 23/04/2026
    Staðan á völlunum
  • 23/04/2026
    Vel heppnaðar keppnis- og æfingaferðir
  • 23/03/2026
    Kynning á foreldraráði Keilis
  • 12/03/2026
    Nýr búnaður og lægri verð í hermunum í Hraunkoti
  • 11/03/2026
    Framlengdur skráningarfrestur í Keilisferðina til Fairplay
  • 10/03/2026
    Breyttar áherslur í mótahaldi hjá Golfklúbbnum Keili