08/06/2026

ICEWEAR BIKARINN: Elva sigraði aftur á Unglingamótaröðinni

ICEWEAR BIKARINN: Elva sigraði aftur á Unglingamótaröðinni

Þriðja mótið á Unglingamótaröð GSÍ fór fram á Leirdalsvelli um helgina. Spilaðar voru 54 holur á þrem dögum en einungis 70% keppenda komast í gegnum niðurskurð og spila á lokadeginum.

Í mótinu  voru samtals 102 kylfingar en Keilir var þar með 20 og komust 14 í gegnum niðurskurðinn. Þá var Keilir með 3 kylfinga á verðlaunarpalli og 1 sigur.

Af drengjunum í mótinu var Halldór Jóhansson efstur Keilismanna í flokki 15-16 ára en hann endaði í þriðja sæti í mótinu en hann bætti skorið sitt á hverjum hring í mótinu. Þá var Óliver Elí Björnsson efstur innan Keilis í flokki 17-18 ára en Óliver endaði í þriðja sæti í mótinu en hann spilaði lægsta hring mótsins uppá 67 högg eða fjögur högg undir par.

Af stúlkunum okkar spilaði Elva María Jónsdóttir best af stúlkum 15-16 ára en hún vann sinn flokk og er nú búin að vinna tvö mót í röð á Unglingamótaröðinni. Elva vann þessa vikuna með 10 höggum en hún vann í síðustu viku með 25 höggum þegar spilað var í Mosfellsbæ: Elva sigraði í Mosfellsbæ – Golfklúbburinn Keilir.

Í flokki 17-18 ára spilaði Tinna Alexía best úr Keili en Tinna endaði í fimmta sæti. Tinna hefur leikið stöðugt golf þetta tímabilið og endað öll mótin í efstu 7 sætunum í sínum flokki.

Einhverjir af þessum krökkum munu taka þátt í Íslandsmóti fullorðinna í Holukeppni sem fer fram á Golfklúbbi Suðurnesja hjá körlunum og Golfklúbbnum Oddi hjá konunum dagana 19-21 júní en næsta Unglingamót er Íslandsmót Golfklúbba í lok mánaðarins.

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 07/06/2026
    ICEWEAR BIKARINN: Jón og Óttar sigruðu á GOLF14
  • 03/06/2026
    Elva sigraði í Mosfellsbæ
  • 22/04/2026
    Tveir slógu draumahögg í ferðum Keilis
  • 24/02/2026
    Happdrætti barna- og ungmennastarfs Keilis
  • 24/09/2025
    Vinna hafin við nýtt teigasett á 9. holu Sveinskotsvallar
  • 23/06/2025
    Íslandsmót 12 ára og yngri: Fjórar sveitir frá Keili