23/06/2026

Meistaramót Keilis 2026

Meistaramót Keilis 2026

Það styttist í stærstu golfveislu ársins, Meistaramót Keilis.

Skráning hefst miðvikudaginn 24. júní klukkan 14:00.

Breytingar hafa verið gerðar frá því í fyrra og biðjum við alla um að kynna sér þær vel.

Forgjafarflokkarnir

Eins og flestum er kunnugt tóku forgjafarflokkarnir talsverðum breytingum í fyrra. Markmiðið með þessum breytingum var að jafna leikinn fyrir alla og minnka getumun innan flokka. Við lærðum mikið af þeirri reynslu og ætlum við því að fínstilla fyrirkomulagið enn frekar.
Við bindum vonir um að þessar breytingar skili sér í jafnari og betri skiptingu flokka.

Engin punktakeppni

Í ár verður ekki leikið í punktakeppni í neinum flokk, enda Meistaramót ávallt verið í grunninn höggleiksmót og við ætlum að prófa að keyra á mótið þannig í ár. Í staðinn bregðum við á það ráð að hafa hámark höggafjölda í fjórða flokki karla og kvenna ásamt öllum aldursflokkunum. Kynnið ykkur þessar breytingar vel í kynningarefni mótsins.

Upplýsingasíða mótsins

Við viljum benda ykkur á að upplýsingasíða mótsins er nú komin í loftið. Þar má finna allar helstu upplýsingar sem snúa að mótinu.

Við munum halda áfram að bæta inn efni á síðuna eftir því sem líður á undirbúninginn og því hvetjum við ykkur til að kíkja reglulega inn á síðuna og fylgjast með því sem þar birtist.

Upplýsingasíðuna má nálgast á forsíðu keilir.is eða með að smella hér

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 15/06/2026
    Úrslit úr Opna Kristals mótinu
  • 04/06/2026
    Opna Kristals mótið – Skráning hefst í dag
  • 01/06/2026
    Átján Keiliskrakkar kepptu á Nesinu
  • 01/06/2026
    Uppfærðar staðarreglur
  • 31/05/2026
    Fréttir af starfshópi um nýjan golfvöll
  • 30/05/2026
    Keilir, HÁ verslun og Kress taka höndum saman