05/07/2026

Meistaramót Keilis hafið

Meistaramót Keilis hafið

Það voru þeir Logi Karlsson og Halldór Rúnarsson sem léku í fyrsta ráshóp sem hóf leik klukkan 07:00 í morgun í 4. flokki karla. Um 350 manns eru skráðir til leiks í mótinu og verður mikil golfveisla framundan á næstu dögum.

Nokkur orð frá Formanni Keilis

Meistaramótið er einstakt og skemmtilegt.

Í hönd fer á næstu dögum Meistaramót Keilis – ein skemmtilegasta og eftirminnilegasta vika golfsumarsins.

Meistaramótið hefur alltaf sérstakan sess í hjörtum okkar kylfinga. Þessa daga hittum við nýja meðspilara, leikum með kylfingum sem eru á svipuðu getustigi og eigum saman upplifun í okkar skemmtilega leik.

Það er líka eitthvað heillandi við að takast á við hreinan höggleik. Þar telur hvert högg, einbeitingin skiptir máli frá fyrsta teig og á síðustu flöt og golfið er leikið í sinni upprunalegu mynd. Það getur reynt á, en það er einmitt það sem gerir upplifunina svo gefandi.

Ég vil óska öllum keppendum innilega góðs gengis. Njótið augnablikanna, sýnið góða íþróttamennsku og gerið ykkar besta. Auðvitað eru úrslitin mikilvæg, en það sem stendur oftast eftir eru minningarnar, samveran og, fyrir mitt leyti, gleðin yfir þeim góðu höggum sem detta inn stöku sinnum, þau lifa iðulega lengur í minningunni en tölurnar á skorkortinu.

Jafnframt vil ég koma á framfæri innilegum þökkum til starfsfólks Keilis fyrir þann mikla metnað og dugnað sem hefur verið lagður í meistaramótið. Vallarstarfsmenn eiga sérstakar þakkir skilið fyrir ótrúlega mikla vinnu í undirbúningi síðustu vikna og mánaða. Það er auðvelt að sjá árangurinn – golfvöllurinn er, að mínu mati, í frábæru ástandi og er meðal, ef ekki besti golfvöllur landsins.

Ég hvet alla félagsmenn til að líta við á Hvaleyrinni næstu daga, fylgjast með frábæru golfi og taka þátt í þeirri einstöku stemningu sem aðeins Meistaramót Keilis getur skapað.

Gangi ykkur öllum sem allra best. Ég hlakka til að sjá ykkur á vellinum og svo í frábæru lokahófi á laugardag 11. júlí.

Áfram Keilir! ⛳💙

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 26/06/2026
    Golfreglu pöbbkviss fimmtudaginn 2. júlí
  • 23/06/2026
    Meistaramót Keilis 2026
  • 15/06/2026
    Úrslit úr Opna Kristals mótinu
  • 04/06/2026
    Opna Kristals mótið – Skráning hefst í dag
  • 01/06/2026
    Átján Keiliskrakkar kepptu á Nesinu
  • 01/06/2026
    Uppfærðar staðarreglur