05/08/2026

Keiliskrakkar skemmtu sér vel á Gulla Arnar Mótinu

Keiliskrakkar skemmtu sér vel á Gulla Arnar Mótinu

Gulla Arnar mótið fór fram á Ljúflingsvelli hjá Golfklúbbnum Oddi þann 29. júlí þegar fjórða mótið á sameiginlegri barna og unglingamótaröð GK og GO var haldið.

Í mótinu kepptu 40 krakkar frá 7 upp í 14 ára gamlir, allir keppendur fengu Ostaslaufu á fyrsta teig og spilað var uppá verðlaun úr Handverksbakaríi Gulla Arnar í Hafnarfirði.

Spilað er uppá lægsta skor í hverjum flokki og dregið úr skorkortum en keppt var í 10 ára og yngri, 9-10 ára flokki, 11-12 ára flokki og 13-14 ára flokki stelpu og stráka.

Bjarni Freyr Bjarnason úr Keili var með besta skor 10 ára og yngri drengja en hann lék hringinn á 38 höggum. Þá fengu allir iðkendur pulsur og svala eftir hring.

 

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 26/07/2026
    Þórdís varði titilinn á Íslandsmóti 50 plús
  • 26/07/2026
    Daníel Ísak braut ísinn á Mótaröð Þeirra Bestu
  • 26/07/2026
    European Young Masters: 3 af 4 keppendum Íslands úr Keili
  • 26/07/2026
    Stönginn út á Íslandsmóti Unglinga í Holukeppni
  • 26/07/2026
    Kristín María með sinn fyrsta sigur á Akureyri
  • 26/07/2026
    Hvaleyrarbikarinn kominn aftur heim í karla og kvennaflokki