Sveitir Keilis í Íslandsmóti Golfklúbba 2026
Sveitir Keilis í Íslandsmóti Golfklúbba 2026
Íslandsmót Golfklúbba
Íslandsmót Golfklúbba verður spilað dagana 13-15 ágúst. Karlarnir spila á Strandarvelli á Hellu og konurnar á Hlíðarvelli í Mosfellsbæ. Báðar sveitirnar spila í fyrstu deild og er klúbburinn með breiðan leikmannahóp sem þarf að velja úr til þess að spila í mótinu.
Valið
Sama aðferð er notuð til að velja í karla og kvenna flokki. Kylfingarnir með fjögur lægstu meðalskor 6 bestu hringja sinna á Mótaröð Þeirra Bestu spila sig inn í liðið, ásamt lægsta meðalskorið á Unglingamótaröðinni. Þá eru einnig valdir efstu kylfingar klúbbsins á heimslistum atvinnumanna og áhugamanna að hverju sinni.
Þá má nefna að Guðrún Brá Björgvinsdóttir og Óliver Elí Björnsson sem bæði spiluðu sig örugglega inn í lið Keilis bjóða ekki kost á sér í liðin í ár þar sem þau eru bæði erlendis að keppa á sterkum mótum. Óskum við þeim góðs gengis í sínum verkefnum þessa vikuna.
Hjá konunum spiluðu Guðrún Birna, Marianna Ulriksen, Elva María og Sigurást Júlía sig inn í liðið og valdar voru Anna Sólveig, Kristín María, Tinna Alexía og Þórdís Geirsdóttir. Liðstjóri kvennaliðsins er Karen Sævarsdóttir. Upplýsingar um mót kvennanna er hægt að finna hér: GolfBox Tournament
Hjá körlunum spiluðu Axel Bóasson, Svanberg Addi, Birgir Björn og Tómas Hugi sig inn í liðið og valdir voru Daníel Ísak Steinarsson, Halldór Jóhannsson, Henning Darri Þórðarsson, Markús Marelsson og Máni Freyr Vigfússon. Liðstjóri karlaliðsins er Gunnar Geir Gústafsson. Upplýsingar um mót karlanna er hægt að finna hér: GolfBox Tournament
Liðin voru valin strax að loknum Hvaleyrarbikar og hafa sveitirnar fengið 3 vikur í undirbúningi fyrir mótið. Við óskum sveitunum góðs gengis og fylgjumst með seinna í vikunni þegar fjörið byrjar.
Sveit Kvenna
Anna Sólveig Snorradóttir, 1995
Elva María Jónsdóttir, 2010
Guðrún Birna Snæþórsdóttir, 2005
Kristín María Valsdóttir, 2010
Marianna Ulriksen, 2002
Sigurást Júlía Arnarsdóttir, 2008
Tinna Alexía Harðardóttir, 2009
Þórdís Geirsdóttir, 1965
Meðalaldur: 25,5
Liðstjóri: Karen Sævarsdóttir
Sveit Karla
Axel Bóasson, 1990
Birgir Björn Magnússon, 1997
Daníel Ísak Steinarsson, 2002
Markús Marelsson, 2007
Máni Freyr Vigfússon, 2010
Halldór Jóhansson, 2011
Henning Darri Þórðarsson, 1998
Tómas Hugi Ásgeirsson, 2004
Svanberg Addi Stefánsson, 2002
Meðalaldur: 23,9
Liðstjóri: Gunnar Geir Gústafsson

