Keilir í öðru sæti í Íslandsmóti 65 ára og eldri kvenna
Keilir í öðru sæti í Íslandsmóti 65 ára og eldri kvenna
Íslandsmót Golfklúbba 65 ára og eldri kvenna kláraðist í dag, en mótið var spilað 10 og 11 ágúst á Húsatóftarvelli í Grindavík.
Í liði Keilis voru Erla Pétursdóttir, Helga Gunnarsdóttir, Kristjana Aradóttir, Margrét Berg Theodórsdóttir, Þorbjörg Jónína Harðardóttir og spilandi liðstjóri var Þorbjörg Albertsdóttir.
Keilir endaði í öðru sæti í mótinu eftir tap gegn Golfklúbbi Reykjavíkur í úrslitum. Til hamingju stelpur, vel spilað.

