Óliver Elí komst í gegn á Boys Amateur Championship
Óliver Elí komst í gegn á Boys Amateur Championship
Óliver Elí Björnsson ásamt þriggja annara Íslendinga er staddur í Bretlandi þar sem Boys og Girls Amateur Championship fer fram.
Drengirnir spila á Gailes Links vellinum í Skotlandi en mótið er eitt sterkasta unglingamót í heiminum hvert ár.
Fyrirkomulag mótsins er höggleikur fyrstu tvo dagana þar sem 64 komast áfram í holukeppnis útsláttarkeppni en í mótinu keppa 144 drengir.
Óliver spilaði á 5 höggum yfir pari á fyrsta hringnum sem skilaði honum 118. sæti, 6 höggum frá niðuskurðarlínunni. Á seinni hringnum spýtti Óliver hinsvegar í og spilaði 5 undir pari til þess að koma sér í 46. sæti og ná niðurskurðinum.
Óliver bætti sig um 10 högg milli hringja, þar af 9 högg á seinni 9 holunum en hann átti frábærar síðustu 9 holur á seinni hringnum til þess að koma sér í gegn, hægt er að finna skorkortið hans hér: The Boys’ Amateur – Leaderboard.
Í dag tekur við holukeppnisleikur en hann mun spila gegn Lawson Aiden frá Skotlandi klukkan 12:40 á staðartíma. Hægt er að fylgjast með holukeppnishluta mótsins hér: The Boys’ Amateur – Match Play
Óliver var eini Íslendingurinn sem náði niðurskurði í mótinu.
Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!
Aðrar fréttir
Keilir í öðru sæti í Íslandsmóti 65 ára og eldri kvenna
Sveitir Keilis í Íslandsmóti Golfklúbba 2026
Keiliskrakkar skemmtu sér vel á Gulla Arnar Mótinu
Þórdís varði titilinn á Íslandsmóti 50 plús
Daníel Ísak braut ísinn á Mótaröð Þeirra Bestu
European Young Masters: 3 af 4 keppendum Íslands úr Keili

