Saga Golfklúbbsins Keilis fest á bók
Saga Golfklúbbsins Keilis fest á bók
Nýverið var undirritaður samningur Golfklúbbsins Keilis við Jóhann Guðna Reynisson um ritun sögu Keilis til útgáfu á 60. afmælisári klúbbsins 2027.
Golfklúbburinn Keilir er meðal stærstu klúbba landsins og hefur í áranna rás vaxið og dafnað þannig að nú er horft til stækkunar á vallarsvæðinu. Fjölmargt afreksfólk í golfi hér á landi á rætur sínar á Hvaleyrinni og má þar nefna Kristínu Pálsdóttur, Úlfar Jónsson, Ólöfu Maríu Jónsdóttur, Björgvin Sigurbergsson, Axel Bóason og nýkrýndan Íslandsmeistara Guðrúnu Brá Björgvinsdóttur. Gríðarleg aðsókn er í klúbbinn og á velli hans og ljóst að ekkert lát verður á þeirri þróun enda byggir Keilir á afar styrkum stoðum langrar vegferðar, eins og lesa má um í væntanlegri sögu.
Jóhann Guðni tók fyrir 10 árum saman sögu klúbbsins fyrstu 10 árin, 1967-1977, og var ákveðið að halda samstarfinu áfram og ljúka verkinu með útgáfu á 60 ára sögunni í tilefni af afmælinu á næsta ári.
Ráðgert er að verkið verði gefið út á bók og mun stuðningsfólki og fyrirtækjum gefast kostur á að styðja við útgáfuna, meðal annars með því að skrá sig fyrir eintaki og fá þar með nafn sitt skráð á heillaóskalista sem birtast mun í bókinni. Um veglega útgáfu verður að ræða þar sem áhersla verður lögð á ríkulegan fjölda mynda frá farsælu starfi í áratugi í eigulegum prentgrip.
Á myndinni eru frá vinstri: Guðríður Hjördís Baldursdóttir, varaformaður Keilis, Ólafur Þór Ágústsson framkvæmdastjóri, Jóhann Guðni Reynisson rithöfundur og Guðmundur Óskarsson formaður Keilis. Ljósmynd: Sveinn Sigurbergsson. Myndin var tekin við undirritun samningsins.
Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!
Aðrar fréttir
Keilir heiðraði Óliver Elí eftir glæsilegan sigur
Íslandsmót unglinga í höggleik – Okkur vantar ykkar hjálp
Opna Kvennamót Keilis 2026 – Skráning hefst 7. ágúst klukkan 14:00
Opna Icewear Texas Scramble mótið – Úrslit
Hvaleyrarbikarinn 2026 – metnaðarfull upplýsingasíða
Okkur vantar ykkar hjálp næstu helgi

