Úrslit úr innanfélagsmóti
Úrslit úr innanfélagsmóti
Eins og undanfarin sumur mun Golfklúbburinn Keilir halda glæsileg innanfélagsmót. Leikið verður á miðvikudögum og eru næstu mót á eftirfarandi dagsetningum. 4. juní (undankeppni bikarinn), 25. juní, 23. júlí og 13. ágúst. Glæsileg verðlaun verða veitt fyrir 5 efstu sætin í punktakeppni og einnig veitt verðlaun fyrir besta skor. Nándarverðlaun verða öll mótin á 10. braut. Hámarksforgjöf í mótinu er 30 hjá körlum og 34 hjá konum. Keppnisgjald er 1500 kr og er skráning á golf.is.
Úrslit 21. maí í punktakeppni urðu eftirfarandi:
1. sæti Gunnar Bergmann Gunnarsson 41
2. sæti Kjartan Einarsson 39
3. sæti Þordís Geirsdóttir 39
4. sæti Kristján Þór Kristjánsson 39
5. sæti Valgerður Bjarnadóttir 37
Þórdís Geirsdóttir var með besta skor 71 högg.
Halldór Freyr Sveinsson hlaut nándarverðalun á 10. braut 1.48
Mótið tókst afar vel þrátt fyrir töluverðan vind og voru 89 félagsmenn sem tóku þátt.
Næsta mót er svo 04. júní.
Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!
Aðrar fréttir
Fyrsti ráshópur lagði af stað í Íslandsmóti unglinga klukkan sjö í morgun
Stækkun golfskála Keilis
Keilir heiðraði Óliver Elí eftir glæsilegan sigur
Saga Golfklúbbsins Keilis fest á bók
Íslandsmót unglinga í höggleik – Okkur vantar ykkar hjálp
Opna Kvennamót Keilis 2026 – Skráning hefst 7. ágúst klukkan 14:00


