Styrktarmót Axels Bóassonar
Styrktarmót Axels Bóassonar
Á laugardaginn mun Axel Bóasson halda styrktarmót og verður spilað Texas Scramble. Axel Bóasson er einn af okkar fremstu kylfingum og hefur hann ákveðið að gerast atvinnumaður og reyna fyrir sér á stóra sviðinu. Eins og allir vita er þetta gríðarlegt verkefni að gerast atvinnumaður og margir hlutir þurfa að ganga saman svo þetta sé hægt. Golfklúbburinn Keilir mun styðja við bakið á Axel og halda Styrktarmót laugardaginn 27. september. Skráning er í fullum gangi á golf.is og einnig er hægt að hringja í s: 565-3360. Mjög flott verðlaun verða einnig í boði á laugardaginn. Axel mun að sjálfsögðu taka á móti keppendum og öllum þeim sem vilja styrkja hann á laugardaginn. Við vonumst til að sjá sem flesta.
Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!
Aðrar fréttir
Nýr búnaður og lægri verð í hermunum í Hraunkoti
Framlengdur skráningarfrestur í Keilisferðina til Fairplay
Breyttar áherslur í mótahaldi hjá Golfklúbbnum Keili
Happdrætti barna- og ungmennastarfs Keilis
Framkvæmdum lokið á nýrri starfsmannaaðstöðu og verkstæði
Happdrætti til styrktar æfingaferðar barna- og unglingastarfs Keilis

