Stækkun golfskála Keilis
Stækkun golfskála Keilis
Framundan er stækkun á golfskálanum okkar. Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 27.júlí síðastliðinn voru byggingarnefndarteikningar samþykktar. Á mannamáli þýðir það að búið er að samþykkja arkitektateikningar af viðbyggingu golfskálans og áhugasamir félagsmenn geta séð þær teikningar á skjá í anddyri golfskálans. Næstu skref eru að ljúka verkfræðiteikningum og bjóða síðan út uppbyggingu skálans. Stefnt er að því að útboð verði nú á haustmánuðum.
Núverandi golfskáli Keilis var tekinn í notkun haustið 1992 með það markmið að geta þjónað um 750 félögum. Síðasta áratuginn hefur hins vegar orðið algjör sprenging í fjölda golfiðiðkenda og félagsmenn eru í dag um 2.200 talsins og skálinn er því orðinn barn síns tíma. Eldhúsaðstaða er ófullnægjandi, golfverslun er of lítil, fjöldi geymsluskápa er of lítill og sjálfur veitingasalurinn á erfitt með að rúma gesti á stærstu viðburðum sumarsins svo nokkur dæmi séu nefnd. Nýja viðbyggingin mun breyta töluvert flæði og notkun skálans frá því sem er í dag, þar sem golfverslun og golftengd þjónusta mun færast á neðri hæðina á meðan efri hæðin verður helguð veitingasölu og félagsstarfi. Ný geymslubygging fyrir golfsett er einnig fyrirhuguð fyrir sunnan skálann. Þessu samhliða mun vinsælasta sólarsvæðið fyrir utan eldhúsgluggann stækka töluvert og gefa fleiri sólþyrstum golfurum færi á að sitja utandyra og njóta þess að fá sér veitingar eftir golfhringinn.
Mynd 1 Fyrirhuguð viðbygging sunnan megin við núverandi skála
Fyrir nýrri félaga Keilis er gaman að segja frá því að golfskáli Keilis hefur ekki alltaf verið á þeim stað sem hann er í dag, þegar golfklúbburinn Keilir var stofnaður árið 1967 fékk Keilir íbúðarhúsið Vesturkot til afnota og var það hús golfskáli Keilis fram til ársins 1992 þegar núverandi skáli var tekinn í notkun. Margir gætu haldi að Vesturkot hefði verið staðsett nálægt núverandi leikskólanum Vesturkot en svo er ekki, fyrsti golfskáli Keilis var staðsettur á miðri núverandi14.brautinni og var aðgengi að skálanum eftir malarslóða framhjá bátaskýlunum, teigunum á 11.braut og yfir miðjan Sveinskotsvöll og má enn í dag sjá leifar af þeim vegslóða.
Framundan er stækkun á golfskálanum okkar. Á afgreiðslufundi byggingarfulltrúa þann 27.júlí síðastliðinn voru byggingarnefndarteikningar samþykktar. Á mannamáli þýðir það að búið er að samþykkja arkitektateikningar af viðbyggingu golfskálans og áhugasamir félagsmenn geta séð þær teikningar á skjá í anddyri golfskálans. Næstu skref eru að ljúka verkfræðiteikningum og bjóða síðan út uppbyggingu skálans. Stefnt er að því að útboð verði nú á haustmánuðum.
Núverandi golfskáli Keilis var tekinn í notkun haustið 1992 með það markmið að geta þjónað um 750 félögum. Síðasta áratuginn hefur hins vegar orðið algjör sprenging í fjölda golfiðiðkenda og félagsmenn eru í dag um 2.200 talsins og skálinn er því orðinn barn síns tíma. Eldhúsaðstaða er ófullnægjandi, golfverslun er of lítil, fjöldi geymsluskápa er of lítill og sjálfur veitingasalurinn á erfitt með að rúma gesti á stærstu viðburðum sumarsins svo nokkur dæmi séu nefnd. Nýja viðbyggingin mun breyta töluvert flæði og notkun skálans frá því sem er í dag, þar sem golfverslun og golftengd þjónusta mun færast á neðri hæðina á meðan efri hæðin verður helguð veitingasölu og félagsstarfi. Ný geymslubygging fyrir golfsett er einnig fyrirhuguð fyrir sunnan skálann. Þessu samhliða mun vinsælasta sólarsvæðið fyrir utan eldhúsgluggann stækka töluvert og gefa fleiri sólþyrstum golfurum færi á að sitja utandyra og njóta þess að fá sér veitingar eftir golfhringinn.
Mynd 2 Gamli vegslóðinn sem lá að fyrsta golfskála Keilis, Vesturkoti.
Gamli skálinn var brenndur haustið 1992 með aðstoð slökkviliðs Hafnarfjarðar.
Framundan eru spennandi tímar en jafnframt krefjandi þar sem töluvert rask mun verða í kringum golfskálann næstu tvö árin eða svo, því það eru ýmis handtök sem fylgja því að byggja við skálann. Stefnt er að því að reyna að ná að klára uppsteypu og jarðvinnu fyrir vorið 2027 og síðan er gert ráð fyrir að innri breytingar fari fram veturinn 2027-2028. Við vonum því að allir félagar sýni þessu róti skilning og láti sig hlakka til að fá stærri og stórbættan nýjan golfskála í framtíðinni.
Lilja G. Karlsdóttir
Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!
Aðrar fréttir
Fyrsti ráshópur lagði af stað í Íslandsmóti unglinga klukkan sjö í morgun
Keilir heiðraði Óliver Elí eftir glæsilegan sigur
Saga Golfklúbbsins Keilis fest á bók
Íslandsmót unglinga í höggleik – Okkur vantar ykkar hjálp
Opna Kvennamót Keilis 2026 – Skráning hefst 7. ágúst klukkan 14:00
Opna Icewear Texas Scramble mótið – Úrslit





