01/10/2014

Bændaglíman 2014

Bændaglíman 2014

Bændaglíman verður haldin laugardaginn 4. október nk. Keppnisfyrirkomulag, 4 manna Texas Scramble, keppendur skrá sig saman í holl. Ræst verður út af öllum teigum kl:14:00. Nándarverðlaun á 10. flöt. Veitingavagninn er á ferðinni meðan á keppni stendur með heitt kakó og STROH.

Að móti loknu verður borinn fram glæsilegur kvöldverður að hætti Brynju og að honum loknum er verðlaunaafhending. Trúbador mætir á svæðið og tekur nokkra valinkunna slagara fyrir liðið. Keilisfélagar eru hvattir til að fjölmenna og skrá sig tímanlega. Síðustu forvöð til að skrá sig er föstudaginn 3. október kl: 13:00.

  • Þátttökugjaldið er aðeins 4.500 kr.
  • Skráning í síma 565 3360 og keilir@keilir.is
  • Þeir sem vilja vera saman í holli skrá sig saman
Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 19/01/2026
    Birgir Björn fer yfir íþróttastarfið og Hraunkot
  • 02/01/2026
    Keilir hlýtur ÍSÍ bikarinn 2025
  • 29/12/2025
    Framkvæmdir á milli 15 og 18. brauta
  • 24/12/2025
    Jólakveðja frá Keili
  • 18/12/2025
    Frá aðalfundi – Viðurkenningar fyrir framfarir og árangur
  • 11/12/2025
    Innheimta félagsgjalda 2026 – Breytt fyrirkomulag greiðsluseðla