09/08/2024

Glæsilegt vallarmet hjá Tómasi

Glæsilegt vallarmet hjá Tómasi

Tómas Eiríksson Hjaltested úr Golfklúbbi Reykjavíkur tók afgerandi forystu í karlaflokki á fyrsta keppnisdegi Hvaleyrarbikarsins í golfi í Hafnarfirði og setti um leið nýtt vallarmet á Hvaleyrarvelli.

Tómas lék á 65 höggum í blíðskaparveðri og var á sjö höggum undir pari vallarins sem hefur verið breytt á síðustu árum. Fyrr í sumar voru tvær nýjar brautir teknar í notkun og besta skorið af meistaraflokksteigum eftir það var 68 högg hjá Axel Bóassyni eða þar til í dag.

Fimm kylfingar léku á 70 höggum og koma næstir. Í þeim hópi er Íslandsmeistarinn Aron Snær Júlíusson úr GKG en hann er einnig efstur á stigalistanum á mótaröðinni. Jóhann Frank Halldórsson GR, Arnar Daði Svavarsson GKG, Aron Emil Gunnarsson Golfklúbbi Selfoss og Kristófer Orri Þórðarson GKG léku einnig á 70 höggum.

Eva Kristinsdóttir úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar var sú eina sem lék undir pari í kvennaflokki. Hún lék á 70 höggum og er því á tveimur undir pari. Fjórum höggum á eftir henni kemur Berglind Erla Baldursdóttir einnig úr GM. Hulda Clara Gestsdóttir úr GKG lék á 76 höggum eins og Andrea Ýr Ásmundsdóttir úr Golfklúbbi Akureyrar.

Hulda sigraði í Hvaleyrarbikarnum í fyrra og er í þriðja sæti stigalistans á mótaröðinni en Hvaleyrarbikarinn er jafnframt lokamótið á mótaröð GSÍ.

Annar hringurinn verður leikinn á morgun og lýkur mótinu á sunnudag þegar kylfingarnir hafa leikið 54 holur eins tíðkast á stigamótunum.

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 04/06/2026
    Opna Kristals mótið – Skráning hefst í dag
  • 01/06/2026
    Átján Keiliskrakkar kepptu á Nesinu
  • 01/06/2026
    Uppfærðar staðarreglur
  • 31/05/2026
    Fréttir af starfshópi um nýjan golfvöll
  • 30/05/2026
    Hola í höggi á fyrsta mótshring ársins!
  • 30/05/2026
    Keilir, HÁ verslun og Kress taka höndum saman