Þórdís Íslandsmeistari eldri kylfinga 2015
Þórdís Íslandsmeistari eldri kylfinga 2015
Þórdis Geirsdóttir varð Íslandsmeistari eldri kylfinga núna um helgina í Vestmannaeyjum. Þórdís lék hringina þrjá einstaklega vel, en lék á 73-73-71 eða +7. Þórdís á orðið glæsilegan feril, en hún hefur núna tekið alla helstu titla sem eru í boði hér á landi. Þórdís er mögnuð íþróttakona og er hvergi nærri hætt að hala inn titlum fyrir sjálfan sig og golfklúbbinn Keili. Sigurvegarinn í konur 65+ kom einnig frá Keili. Sigrún M.Ragnarsdóttir spilaði einnig vel og vann öruggan sigur í þessum flokki. Í öðru sæti varð Inga Magnúsdóttir sem er líka Keiliskona. Jóhann Peter Andersen varð svo í öðru sæti í karlar 70+. Einnig voru unglingarnir okkar að spila síðustu helgi á Íslandsmóti unglinga og stóðu allir sig vel. Sigurlaug Rún Jónsdóttir varð í 3. sæti í 17-18 ára kvenna og Henning Darri Þórðarsson varð einnig í þriðja sæti eftir bráðbana í 17-18 ára karla. Keilir óskar öllum til hamingju með góðan árangur.
Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!
Aðrar fréttir
Nýr búnaður og lægri verð í hermunum í Hraunkoti
Framlengdur skráningarfrestur í Keilisferðina til Fairplay
Breyttar áherslur í mótahaldi hjá Golfklúbbnum Keili
Happdrætti barna- og ungmennastarfs Keilis
Framkvæmdum lokið á nýrri starfsmannaaðstöðu og verkstæði
Happdrætti til styrktar æfingaferðar barna- og unglingastarfs Keilis



