Golfkylfur.is og Keilir skrifa undir samning
Golfkylfur.is og Keilir skrifa undir samning
Keilir og Golfkylfur.is hafa ákveðið að framlengja farsælu samstarfi sínu, en Golfkylfur.is hafa boðið upp á viðgerðir og mælingar fyrir kylfinga í aðstöðu Hraunkots. Við undirritun samningsins verður aðstaða Golfkylfur.is stækkuð og nýjum mælitækjum komið fyrir. Aðstaðan færist jafnframt upp á aðra hæð í Hraunkoti. Þessar breytingar munu auka til muna gæði þeirrar þjónustu sem Hraunkot býður uppá og er leitandi að annarri eins aðstöðu hér á landi.
Birgir Vestmar, eigandi Golfkylfur.is:
„Ég er gríðarlega glaður að geta framlengt farsælu samstarfi mínu með Hraunkoti og Keili, og hlakka til að geta boðið uppá bestu hugsanlegu fitting aðstöðu með nýjustu tækni fyrir allra kylfinga“.
Ólafur Þór, framkvæmdastjóri Keilis:
„Birgir og hans fyrirtæki hafa verið einn af fjölskyldumeðlimum okkar frá stofnun Hraunkots og er það því gífurlegt ánægjuefni að við erum búnir að staðfesta samning Hraunkots og Golfkylfur.is til framtíðar. Aðstaðan og tæknin sem sett verður upp verður enn ein skrautfjöðurin í hatt glæsilegrar heilsársaðstöðu Hraunkots“.
Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!
Aðrar fréttir
Fyrsti ráshópur lagði af stað í Íslandsmóti unglinga klukkan sjö í morgun
Stækkun golfskála Keilis
Keilir heiðraði Óliver Elí eftir glæsilegan sigur
Saga Golfklúbbsins Keilis fest á bók
Íslandsmót unglinga í höggleik – Okkur vantar ykkar hjálp
Opna Kvennamót Keilis 2026 – Skráning hefst 7. ágúst klukkan 14:00

