Meistaramót 2016
Meistaramót 2016
Nú fer senn að líða að stærsta móti ársins hjá okkur. Meistaramót Keilis hefst í byrjun júlí. Núna er undirbúningur í fullum gangi og við viljum biðja alla þá sem eru með bikara (farandbikara) frá meistaramótinu 2015 að koma þeim á skrifstofu Keilis sem allra fyrst.
Einnig viljum við minna á að við skráningu þarf að greiða mótsgjald, þetta er gert til að minnka álag á golfverslun sem verður gífurlegt þessa daga. Við getum því miður ekki komið með áætlun um rástíma alveg strax en nokkrar breytingar hafa verið gerðar á Meistaramóti Keilis 2016. Stjórn Keilis hefur ákveðið að gera smávægilegar breytingar á fyrirkomulagi Meistaramóts Keilis 2016. Stærstu breytingarnar lúta aðalllega að elstu flokkunum. Enn í stað tveggja flokka 55+ og 70+, verður aðeins keppt í einum flokki 60 ára og eldri. Þar verður keppt í höggleik og í punktakeppni með forgjöf. Leikdagar verða hjá þeim flokki frá sunnudegi til þriðjudags alls 54 holur. Þá verður 3. flokkur kvenna leikinn yfir 4 daga eða 72 holur, og byrjar sá flokkur á miðvikudegi og leikur til laugardags. Einnig mun 3. flokkur karla leika frá miðvikudegi til laugardags. Skráning er hafinn á golf.is. Meistaramótið hefst 03. júlí og lýkur 09. júlí og við hvetjum alla félagsmenn Keilis að taka þátt í skemmtilegasta móti ársins.
Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!
Aðrar fréttir
Nýr búnaður og lægri verð í hermunum í Hraunkoti
Framlengdur skráningarfrestur í Keilisferðina til Fairplay
Breyttar áherslur í mótahaldi hjá Golfklúbbnum Keili
Happdrætti barna- og ungmennastarfs Keilis
Framkvæmdum lokið á nýrri starfsmannaaðstöðu og verkstæði
Happdrætti til styrktar æfingaferðar barna- og unglingastarfs Keilis


