20/10/2016

Karl Ómar ráðinn íþróttastjóri Keilis

Karl Ómar ráðinn íþróttastjóri Keilis

Karl Ómar Karlsson hefur verið ráðinn íþróttastjóri Keilis frá og með 1. nóvember. Hann mun hafa yfirumsjón með allri þjálfun barna, unglinga, félagsmanna og afrekskylfinga Golfklúbbsins Keilis.

Karl Ómar er menntaður PGA golfkennari en hann lauk HGTU golfkennaranámi frá Svíþjóð árið 2003. Hann hefur sótt ýmis námskeið á vegum norsku og sænsku golfkennarasamtakana ásamt því að koma að ýmsum verkefnum, þjálfun og kennslu og liðstjórn fyrir Golfsamband Íslands.

Í vor gaf Karl Ómar og fræðslunefnd GSÍ út leiðarvísi fyrir golfklúbba. Leiðarvísirinn hefur þann tilgang að leggja grunninn að uppbyggingu á þjálfun og kennslu og skipulagi í barna- og unglingastarfi í golfklúbbum.

Einnig er Karl Ómar í golfskólanefnd PGA sem er að fara af stað með nýtt golfkennaranám á Íslandi árið 2017.

Karl Ómar eða Kalli og hann er kallaður hefur starfað sem grunnskólakennari og golfkennari frá árinu 1993.

Árin 2005 til 2013 var Kalli íþróttastjóri Golfklúbbsins Leynis á Akranesi. Árin 2000 til 2005 starfaði Kalli sem PGA headpro hjá Eiker og RE golfklúbbunum í Noregi.

Björgvin Sigurbergsson sem starfað hefur sem íþróttastjóri Keilis undanfarin ár heldur áfram sínum störfum sem yfirþjálfari  Golfklúbbsins Keilis.

Golfklúbburinn Keilir vill bjóða Kalla velkominn til starfa og óska honum velfarnaðar í starfi.

Deildu þessu á þína samfélagsmiðla!

Aðrar fréttir

  • 19/08/2025
    Fyrirtækjakeppni Keilis 2025
  • 18/08/2025
    Úrslit úr Opna Icewear Kvennamóti Keilis
  • 16/08/2025
    Keilir – þvílíkur völlur og þvílíkt mótahald.
  • 27/07/2025
    Úrslit úr Opna 66° Norður
  • 26/07/2025
    Kvennalið Keilis Íslandsmeistari
  • 24/07/2025
    Opnanir og lokanir á næstunni vegna Íslandsmótsins í golfi